Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 928 — 495. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um bifreiðakaup ráðuneytisins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar bifreiðar hafa verið keyptar til afnota fyrir ráðuneytið frá því í ársbyrjun 2014, af hvaða tegund eru þær, hvaða eldsneyti notar hver þeirra, hver er uppgefin eldsneytisnotkun hverrar þeirrar og hver er uppgefin losun hverrar þeirra á koltvíoxíði (CO2)?
2. Hvernig samræmast bifreiðakaup fyrir ráðuneytið markmiði í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um orkuskipti (146. mál) um að fimmtungur bifreiða í eigu opinberra aðila verði vistvænn fyrir árið 2020?
3. Hefur krafa um að bifreiðar sem keyptar eru til nota fyrir opinbera aðila nýti endurnýjanlega orkugjafa verið í útboðsskilmálum vegna bifreiðakaupa ráðuneytisins eða er áformað að slíkir skilmálar verði settir?
Frá því í ársbyrjun 2014 hefur verið keypt ein bifreið í ráðuneytinu. Um var ræða endurnýjun bifreiðar sem var frá árinu 2004. Nýja bifreiðin er af tegundinni Mercedes Benz E 250 Blue Tec 4 MATIC með díselvél. Uppgefin eyðsla er 4,7 l/100 í blönduðum akstri og losun koltvíoxíðs er 156 g/km. Bifreiðin uppfyllir losunarskilyrði samkvæmt Euro 6-staðli.
Við gerð útboðsgagna var horft til umhverfisþátta, svo sem eldsneytiseyðslu og losun koltvíoxíðs, til samræmis við tæknilega kosti sem þá voru mögulegir. Vegna öryggissjónarmiða reyndist á þeim tíma sem spurt er um ekki unnt að gera kröfu í útboðsskilmálum um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Áformað er að við næstu endurnýjun bifreiðar ráðuneytisins verði gerð enn ríkari krafa um umhverfissjónarmið, þ.m.t. um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, og að útboðsskilmálar samræmist umhverfismarkmiðum sem Alþingi setur. Þar verði sérstaklega litið til rafbíla eða tengiltvinnbíla.