Ferill 548. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 954 — 548. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Eygló Harðardóttur um lækkun byggingarkostnaðar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Til hvaða aðgerða var gripið á vegum ráðuneytisins til að fylgja eftir lið 2.3 í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 29. maí 2015 í tengslum við kjarasamninga um lækkun byggingarkostnaðar?
Í tilvitnuðum lið yfirlýsingar þáverandi ríkisstjórnar um húsnæðismál frá 29. maí 2015 segir: „Gjaldtaka sveitarfélaga vegna lóða og gatnagerðargjalda verður skoðuð með það fyrir augum að lækka byggingarkostnað.“
Þann 19. apríl sl. skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra starfshóp sem hefur það hlutverk að yfirfara gildandi lög um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, með það m.a. að markmiði að yfirfara reynsluna af framkvæmd laganna. Er stefnt að því að niðurstöður starfshópsins liggi fyrir næsta haust.