Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 955  —  487. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um flutning námsbókalagers Menntamálastofnunar til A4.


     1.      Hver var aðdragandi þess að bjóða A4 að taka við námsbókalager Menntamálastofnunar?
    Rétt er að árétta í upphafi svars að fyrirtækinu A4 var ekki boðið að taka við námsbókalager stofnunarinnar eins og látið er að liggja í orðalagi þessa liðar fyrirspurnarinnar. Eins og fram kemur síðar í þessu svari var vistun lagersins boðin út á grundvelli laga um opinber innkaup, nr. 120/2016. Í kjölfar stefnumótunar fyrir starfsemi Menntamálastofnunar og í framhaldi af sjálfsmatsgreiningu á allri starfsemi hennar á haustmánuðum 2016, þar sem greint var hver ætti að vera kjarnastarfsemi stofnunarinnar, var ákveðið að bjóða út lagerhaldið og dreifingu námsbóka Menntamálastofnunar.

     2.      Hvaða stefnumörkun liggur að baki þeirri ákvörðun?
    Með lögum um Menntamálastofnun, nr. 91/2015, er hlutverk stofnunarinnar skilgreint þannig að stofnunin skuli stuðla að auknum gæðum skólastarfs og framförum í þágu menntunar í samræmi við lög og stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Eitt af meginverkefnum stofnunarinnar er að sjá nemendum í skyldunámi fyrir vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum og öðrum nemendum eftir því sem stofnuninni kann að verða falið. Stofnuninni var með lögunum enn fremur veitt sama heimild og Námsmatsstofnun hafði, að semja við utanaðkomandi aðila um að sinna þjónustu sem stofnuninni er falið með lögum. Stofnuninni stýrir forstjóri, skipaður af ráðherra, sem ber ábyrgð á að hún starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf. Rétt er einnig í þessu samhengi að vísa til greiningarvinnu sem fram fór árið 2016 á námsefnisbirgðum Menntamálastofnunar fyrir grunnskóla út frá aldri bóka og sölu. Þar kom m.a. fram að birgðakostnaður væri einn af stærstu kostnaðarliðum fyrirtækja í útgáfu og í skýrslu um greininguna er dregið fram að heildarkostnaður við birgðahald stofnunarinnar sé mjög hár, allt að 20–40% af heildarútgjöldum. Í skýrslunni er fjallað um nokkrar leiðir til að minnka þennan kostnað, svo sem að bjóða birgðahaldið út. Að öðru leyti er vísað til svars við 1. lið fyrirspurnarinnar hér að framan.

     3.      Hverju sætir að verkefnið var ekki boðið út?
    Verkefnið var boðið út á vegum Ríkiskaupa, með útboði nr. 20438 – Vöruhýsing og dreifing námsgagna. Opnunardagur tilboða var 17. janúar 2017. Lægsta og þar með hagstæðasta tilboð sem barst var frá A4 og var því tekið. Við útboðið var í einu og öllu farið eftir lögum og reglum um opinber útboð og engar athugasemdir bárust.

     4.      Telur ráðherra að ákvörðunin samræmist lögum um opinber innkaup?
    Ljóst er að ákvörðun um útboð á vöruhýsingu og dreifingu námsgagna samræmist lögum um opinber innkaup enda af þeirri stærðargráðu að nauðsynlegt var að bjóða út lagerhald og dreifingu fyrir Menntamálastofnun.

     5.      Hvernig telur ráðherra nýtt fyrirkomulag samræmast því lögbundna hlutverki Menntamálastofnunar að leggja grunnskólum til námsgögn?
    Hlutverk Menntamálastofnunar samkvæmt lögum nr. 91/2015 er að leggja grunnskólum til fjölbreytt og vönduð námsgögn sem eru í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla. Því hlutverki sinnir stofnunin áfram. Ekki verður séð að Menntamálastofnun sé skylt að reka birgðageymslu og annast dreifingu og því er stofnuninni í sjálfsvald sett að bjóða út þessa starfsemi rétt eins og aðrar ríkisstofnanir útvista margvíslegri þjónustu. Með því að bjóða út lagerhald og dreifingu felst ákveðinn ávinningur með lausn húsnæðisvanda sem stofnunin hefur búið við og lækkar þessi ráðstöfun einnig kostnað við birgðahald og dreifingu. Að mati stofnunarinnar er þessi aðgerð sambærileg innkaupum á annarri þjónustu, svo sem prentun, leigu á húsnæði, öryggisvörslu, þrifum o.fl. Fyrirkomulagið samræmist því að öllu leyti því lögbundna hlutverki Menntamálastofnunar að leggja grunnskólum til námsgögn.