Ferill 529. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 960 — 529. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um einkavæðingu Iðnskólans í Reykjavík.
1. Hvað greiddi Fjöltækniskólinn, eða eigendur hans, íslenska ríkinu fyrir Iðnskólann í Reykjavík?
Þegar Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöltækniskólinn voru sameinaðir var Iðnskólinn í Reykjavík lagður niður. Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Fjöltækniskólinn gerðu með sér þjónustusamning þar sem Fjöltækniskóla Íslands var falinn rekstur þeirrar einingar sem áður var Iðnskólinn í Reykjavík og þeirra eigna sem honum fylgdu. Engar greiðslur áttu sér stað frá Fjöltækniskóla Íslands fyrir Iðnskólann í Reykjavík, enda er ríkið eigandi og verður eigandi allra þeirra eigna sem Fjöltækniskóli Íslands tók til rekstrar ásamt þeim tækjum og tólum sem bætast við á rekstrartíma Fjöltækniskóla Íslands/Tækniskólans. Verði þjónustusamningnum sagt upp eða ljúki samningstímanum af öðrum ástæðum tekur ríkið við skólanum með öllum eignum sem voru fyrir hendi, hafa verið endurnýjaðar og/eða aflað af Fjöltækniskóla Íslands/Tækniskólanum.
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu inn í Fjöltækniskólann frá íslenska ríkinu við sameiningu hans við Iðnskólann í Reykjavík? Hverjar voru þessar eignir?
Engar eignir runnu inn í Fjöltækniskóla Íslands/Tækniskólann við gerð þjónustusamningsins um rekstur Iðnskólans í Reykjavík og eru engar eignir vegna þessa skráðar í efnahagsreikning Fjöltækniskóla Íslands/Tækniskólans, enda er ríkið eigandi eignanna og Fjöltækniskólinn/Tækniskólinn rekstraraðili.
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Fjöltækniskólanum að lokinni sameiningu hans og Iðnskólans í Reykjavík?
Nei, enda var Iðnskólinn í Reykjavík lagður niður.
4. Rann Iðnskólinn í Reykjavík ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Tækniskólann/Fjöltækniskólann án nokkurs endurgjalds?
Nei. Engar eigur ríkisins hafa runnið inn í Fjöltækniskóla Íslands/Tækniskólann.