Ferill 600. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 968 — 600. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um starfsemi erlendra fólksflutningafyrirtækja.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
1. Hversu margar erlendar fólksflutningabifreiðar voru skráðar til aksturs í atvinnuskyni hér á landi árin 2016 og það sem af er yfirstandandi ári og fyrir hve marga farþega var hver þeirra ætluð?
2. Telur ráðherra þörf á að breyta reglum og vinnulagi varðandi starfsemi erlendra fólksflutningabifreiða hér á landi og greiðslur opinberra gjalda vegna slíkrar starfsemi, t.d. þannig að gerð verði krafa um einhverja fyrirframgreiðslu slíkra gjalda áður en störf hefjast?
3. Hvaða aðilar hafa eftirlit með starfsemi erlendra fyrirtækja í fólksflutningum sem starfa hér á landi og í hverju er það einkum fólgið?
4. Hvaða úrræði eru til að beita innheimtu og viðurlögum hafi erlendur aðili í fólksflutningum ekki greitt opinber gjöld vegna starfsemi sinnar hér á landi og er farinn af landi brott?
Skriflegt svar óskast.