Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 978 — 610. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um leiðsögumenn.
Frá Katrínu Jakobsdóttur.
1. Telur ráðherra að lögvernda beri starfsheiti leiðsögumanna þannig að tryggt verði að það noti einungis þeir sem hafa lokið viðurkenndu leiðsögumannsnámi, t.d. í samræmi við staðal um menntun leiðsögumanna IST EN 15565:2008, eða aflað sér réttar til að bera starfsheitið með öðrum viðurkenndum hætti, svo sem raunfærnimati?
2. Hvernig telur ráðherra að rétt væri að standa að viðurkenningu leiðsögumannsnáms til leiðsögumannsréttinda og sérgreina innan þess?
3. Telur ráðherra að með tilliti til öryggissjónarmiða o.fl. skuli gera kröfur um þekkingu leiðsögumanna sem starfa hér á landi á vegum erlendra aðila á náttúru Íslands, veðurfari og staðháttum að forsendu fyrir heimild þeirra til að starfa sem leiðsögumenn hér á landi?
4. Telur ráðherra rétt að gera sérstakar kröfur til þeirra leiðsögumanna sem annast leiðsögn í þjóðgörðum landsins eða tryggja á annan hátt þekkingu þeirra á náttúru þjóðgarðanna, gildi þeirra og starfsemi?
Skriflegt svar óskast.