Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1014  —  396. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um nýtingu vatnsauðlinda þjóðlendna.


     1.      Hver er stefna ráðherra um heimildir til nýtingar vatnsauðlinda sem tilheyra þjóðlendum til framleiðslu raforku í smáum stíl, þ.e. svonefndra smávirkjana með uppsett rafafl undir 10 MW?
    Að baki löggjöf um þjóðlendur býr sú hugsun að um sameiginleg gæði þjóðarinnar sé að ræða. Innan þeirra getur enginn farið með eigandaforræði nema byggt sé á afréttarnotum eða öðrum réttindum sem færðar hafa verið sönnur á frammi fyrir óbyggðanefnd og dómstólum. Ýmis ákvæði laganna undirstrika þetta séreðli þjóðlendna. Forsætisráðuneytið og sveitarfélög fara saman með forræði þjóðlendna. Lögð er áhersla á að afnot, sem heimiluð eru, séu tímabundin og hvers konar nýtingarheimildir séu auglýstar þannig að jafnræðis og gagnsæis sé gætt. Lög gera enn fremur ráð fyrir að ef ákveðið er eða samið um gjald vegna tímabundinna afnota þá beri að nýta tekjur í þágu þjóðlendna.
    Margar stjórnvaldsstofnanir koma að því að heimila nýjar virkjanir. Um veitingu virkjanaleyfa gilda ákvæði raforkulaga, nr. 65/2003, og reglugerð nr. 1040/2005, um framkvæmd raforkulaga, með síðari breytingum. Jafnframt þarf, ef svo ber undir, leyfi forsætisráðherra á grundvelli laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998. Frá gildistöku laganna hefur ekki verið sótt um leyfi til smávirkjana innan þjóðlendu. Ekki hefur verið mótuð sérstök stefna varðandi smávirkjanir í þjóðlendum. Vegna sjónarmiða um náttúruvernd, sjálfbæra þróun og sérstöðu hálendisins er hins vegar ástæða til varfærni þegar til skoðunar er að heimila nýja uppbyggingu og framkvæmdir. Forsætisráðuneytið hefur sem landeigandi komið slíkum sjónarmiðum á framfæri við skipulagsvinnu sveitarfélaga.
    Áformað er að mótuð verði eigandastefna fyrir þjóðlendur sem útfæri nánar landsskipulagsstefnu og endurspegli hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar.

     2.      Hvaða skilyrði eru að jafnaði lögð til grundvallar þegar teknar eru ákvarðanir um gerð slíkra nýtingarsamninga og hvaða upplýsinga er krafist í því sambandi?
    Landsvirkjun á allar virkjanir sem staðsettar eru innan þjóðlendu eða nýta réttindi sem tilheyra þjóðlendum ef frá er talin Hellisheiðarvirkjun Orkuveitu Reykjavíkur sem nýtir að hluta til jarðhita innan þjóðlendu. Ekki hefur enn verið gerður nýtingarsamningur vegna virkjana innan þjóðlendu, en margar virkjanir Landsvirkjunar voru tilkomnar fyrir gildistöku þjóðlendulaga. Hvað varðar aðrar virkjanir og stækkun á einni virkjun í eigu Landsvirkjunar hefur nýting verið heimiluð með fyrirvara um að síðar verði ákveðið hvernig gjaldtöku verði háttað. Eina virkjunin þar sem uppgjör hefur farið fram er Kárahnjúkavirkjun þar sem tekið var mið af dómi Hæstaréttar um þá sömu virkjun og varðaði ákvörðun eignarnámsbóta til einkaaðila vegna réttinda innan hefðbundinna eignarlanda.

     3.      Hvernig er endurgjald fyrir afnot þessara vatnsréttinda ákvarðað?
    Starfshópur nokkurra ráðuneyta er nú að vinna að tillögum í því efni. Kveikjan að þeirri vinnu er ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að endurgjaldslaus afnot fyrirtækja, þ.m.t. ríkisfyrirtækja, af vatnsauðlindum í opinberri eigu kunni að fela í sér ríkisaðstoð sem ekki samrýmist EES-samningnum. Einnig liggja fyrir eldri opinberar skýrslur um málefnið. Að mati ESA ber við ákvörðun endurgjalds fyrir afnot auðlinda í opinberri eigu á þessu sviði að horfa til þess sem tíðkast á markaði. Starfshópurinn mun gefa yfirlit yfir mögulega valkosti í þessu efni en ýmsar leiðir koma til greina. Fyrirmyndir má sækja til dómaframkvæmdar og leigusamninga sem gerðir hafa verið um vatnsréttindi og jarðhita víðs vegar um land. Leitað hefur verið eftir sjónarmiðum Landsvirkjunar og annarra orkufyrirtækja um tilhögun gjaldtöku.
    Starfshópurinn fjallar einnig um rökstutt álit ESA varðandi úthlutun nýrra nýtingarréttinda. Í álitinu kemur fram að nýtingarréttindum skuli úthlutað í opnu valferli þar sem jafnræðis er gætt og á grundvelli hlutlægra skilyrða fyrir vali á nýtingarleyfishafa. Samkvæmt álitinu á enn fremur að tryggja að nýtingartími sé ekki lengri en þörf krefur fyrir virkjunaraðila að fá fjárfestingu til baka ásamt hæfilegum arði af fjárfestingunni. Ekki má heldur, að sögn ESA, veita rétthafa forgang til endurnýjunar að þeim tíma liðnum.
    Ljóst er að bæði gjaldtaka fyrir nýtingu auðlinda á þessu sviði og úthlutun og tímalengd nýtingarleyfa eru pólitísk málefni sem þarf að taka til gagngerrar skoðunar og víðtækrar umræðu á Alþingi og í samfélaginu áður en þeim er ráðið til lykta. Hlutverk og stefna hins opinbera við nýtingu sameiginlegra auðlinda eru lykilatriði í því sambandi. Mjög misjafnt er eftir Evrópuríkjum hvaða leiðir hafa verið farnar í þessu efni. Í Noregi var t.d. ákveðið í kjölfar dóms EFTA-dómstólsins frá 2007 að leggja enn frekar áherslu á hlutverk ríkisins en áður.