Ferill 590. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1073 — 590. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.
Taflan hér á eftir sýnir kynjaskiptingu skipaðra aðalmanna í nefndum, stjórnum og ráðum en nær ekki til varamanna.
| Heiti nefndar, stjórnar, ráðs | Kynjaskipting | |
| KK | KVK | |
| AVS, úthlutunarnefnd 2018–2022 | 2 | 1 |
| Bjargráðasjóður, stjórn 2018–2022 | 2 | 1 |
| Dýralæknaráð 2018–2023 | 2 | 3 |
| Erfðanefnd landbúnaðarins 2016–2019 | 5 | 3 |
| Faghópur vegna verkefnis um mat á gróðurauðlindum 2017–2026 | 3 | 2 |
| Fiskræktarsjóður, stjórn 2017–2021 | 3 | 2 |
| Fisksjúkdómanefnd 2016–2021 | 3 | 2 |
| Framkvæmdanefnd búvörusamninga 2017–2026 | 4 | 3 |
| Framleiðnisjóður landbúnaðarins, stjórn 2017–2021 | 3 | 2 |
| Horses of Iceland, markaðsverkefni íslenska hestsins, verkefnisstjórn | 6 | 4 |
| Jafnréttisfulltrúi/jafnréttisnefnd ANR 2016–2018 | 2 | 1 |
| Markanefnd 2013–2021 | 3 | 1 |
| Matarauður Íslands, verkefnastjórn 2017–2021 | 1 | 3 |
| Matís ohf., stjórn 2018–2019 | 3 | 4 |
| Matsnefnd um lax- og silungsveiði 2015–2019 | 2 | 1 |
| Ráðgjafarnefnd Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna 2016–2020 | 5 | 4 |
| Ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara | 2 | 2 |
| Ráðgjafarnefnd um uppruna og ræktun íslenska hestsins | 3 | 0 |
| Ráðgjafarnefnd um útflutning hrossa | 3 | 2 |
| Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga | 4 | 4 |
| Samráðshópur um verkefnið Matarauður Íslands | 6 | 7 |
| Samstarfsnefnd um bætta umgengni um auðlindir sjávar 2017–2022 | 5 | 3 |
| Starfshópur til að vinna að reglugerð um heilbrigðisstarfsmenn dýra | 2 | 2 |
| Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum | 3 | 2 |
| Starfshópur um endurskoðun hrognkelsaveiða | 2 | 1 |
| Starfshópur um endurskoðun reglugerðar nr. 52/2014 um tilkynningar- og skráningarskylda dýrasjúkdóma | 3 | 2 |
| Starfshópur um fjareftirlit með fiskiskipum | 3 | 0 |
| Starfshópur um flatfiskarannsóknir | 6 | 1 |
| Starfshópur um heildarendurskoðun á regluverki er varðar notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndunarsvæði á Íslandsmiðum | 4 | 1 |
| Starfshópur um innkaupastefnu opinberra aðila á sviði matvæla | 2 | 3 |
| Starfshópur um viðhald gæða í ferskfiski | 2 | 2 |
| Stjórn bleikjukynbótaverkefnis á Hólum | 3 | 2 |
| Stjórn verkefnasjóðs sjávarútvegsins, almenn deild | 1 | 2 |
| Stjórn verkefnasjóðs sjávarútvegsins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði | 2 | 2 |
| Ullarmatsnefnd | 0 | 3 |
| Umhverfissjóður sjókvíaeldis, stjórn 2014–2018 | 3 | 2 |
| Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna | 8 | 1 |
| Úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla 2017–2019 | 2 | 1 |
| Úttektarmenn samkvæmt ábúðarlögum 2016–2020 | 1 | 1 |
| Úttektarnefnd um opinbert eftirlit með framleiðslu matvæla | 3 | 2 |
| Úttektarstjórn um opinbert eftirlit með framleiðslu matvæla | 3 | 0 |
| Veiðigjaldsnefnd 2012–2018 | 2 | 1 |
| Verðlagsnefnd búvara 2017–2018 | 5 | 3 |
| Verkefnastjórn um dóm EFTA-dómstólsins 14. nóvember 2017 | 3 | 2 |
| Verkefnisstjórn um kortlagningu hafsbotnsins umhverfis Ísland | 2 | 1 |
| Yfirmatsnefnd samkvæmt ábúðarlögum 2018–2022 | 2 | 1 |
| Yrkisréttarnefnd 2017–2021 | 2 | 1 |