Ferill 589. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1074 — 589. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um kynjaskiptingu í stjórnum, ráðum og nefndum á málefnasviði ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er kynjaskiptingin í þeim stjórnum, ráðum og nefndum sem starfandi eru á málefnasviði ráðherra? Óskað er upplýsinga um kynjaskiptingu í hverri nefnd, stjórn og ráði um sig.
Taflan hér á eftir sýnir kynjaskiptingu skipaðra aðalmanna í nefndum, stjórnum og ráðum en nær ekki til varamanna.
| Heiti nefndar, stjórnar, ráðs | Kynjaskipting | |
| KK | KVK | |
| Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar 2017–2020 | 1 | 1 |
| Áfrýjunarnefnd neytendamála 2017–2021 | 1 | 2 |
| Áfrýjunarnefnd samkeppnismála 2017–2021 | 3 | 1 |
| Eftirlitsnefnd fasteignasala 2016–2019 | 2 | 2 |
| Endurskoðendaráð 2017–2021 | 3 | 3 |
| Faggildingarráð 2018–2020 | 5 | 1 |
| Fagráð atvinnulífsins og Neytendastofu á sviði mælifræði | 5 | 1 |
| Ferðamálaráð 2015–2018 | 5 | 5 |
| Hönnunarsjóður, stjórn 2016–2018 | 2 | 3 |
| Iceland Naturally, N-Ameríka 2017–2019 | 2 | 5 |
| Kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa 2017–2018 | 2 | 1 |
| NATA, vestnorrænt ferðamálasamstarf 2017–2020 | 1 | 1 |
| Nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, sbr. lög nr. 58/2016 | 1 | 2 |
| Nefnd um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga | 0 | 2 |
| Nefnd um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist | 2 | 2 |
| Nefnd um veitingu ívilnana vegna nýfjárfestinga 2015–2018, sbr. lög nr. 41/2015 | 1 | 2 |
| Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, stjórn 2018–2019 | 3 | 2 |
| Prófnefnd bifreiðasala 2016–2018 | 2 | 2 |
| Prófnefnd bókara 2015–2019 | 1 | 2 |
| Prófnefnd, sbr. bráðabirgðaákvæði II í lögum um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015 | 1 | 2 |
| Prófnefnd til löggildingar endurskoðunarstarfa 2017–2021 | 2 | 1 |
| Prófnefnd vigtarmanna 2015–2020 | 2 | 1 |
| Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs 2015–2019 | 1 | 2 |
| Reikningsskilaráð 2016–2020 | 3 | 2 |
| Starfshópur um að efla sýnileika hugverkaréttinda | 4 | 3 |
| Starfshópur um gerð orkustefnu | 8 | 7 |
| Starfshópur um kennitöluflakk í atvinnurekstri | 0 | 2 |
| Starfshópur um orkuöryggi á heildsölumarkaði raforku | 5 | 4 |
| Starfshópur um raforkuflutning í dreifbýli (þriggja fasa rafmagn) | 2 | 3 |
| Starfshópur um raforkumál garðyrkjubænda | 4 | 1 |
| Starfshópur um raforkumálefni á Norð-Austurlandi | 4 | 4 |
| Starfshópur um raforkumálefni á Vestfjörðum | 4 | 3 |
| Stjórn Flugþróunarsjóðs | 4 | 3 |
| Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 2017–2019 | 2 | 2 |
| Stjórn Samkeppniseftirlitsins 2017–2021 | 1 | 2 |
| Stjórnarnefnd tryggingardeildar útflutnings | 2 | 3 |
| Stýrihópur um framkvæmd hönnunarstefnu 2014–2018 | 0 | 3 |
| Stýrihópur v/samnings um vegtengingu milli iðnaðarsvæðisins á Bakka og Húsavíkurhafnar | 3 | 0 |
| Tækninefnd Vísinda- og tækniráðs 2016–2018 | 6 | 5 |
| Tækniþróunarsjóður, stjórn 2017–2019 | 2 | 4 |
| Úrskurðarnefnd raforkumála 2015–2019 | 2 | 1 |
| Verkefnisstjórn um ferðamálaáætlun 2020–2025 | 2 | 4 |