Ferill 640. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1105 — 640. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um ábyrgðarmenn námslána, niðurfellingu ábyrgðar og erlenda stúdenta.
Frá Guðjóni S. Brjánssyni.
1. Styður ráðherra lagabreytingu í þá veru að skuldbindingar ábyrgðarmanna á námslánum sem tekin voru fyrir 27. júlí 2009, þegar ákvæði um ábyrgðarmenn námslána var fellt brott, falli niður við 67 ára aldur?
2. Hefur frá upphafi verið möguleiki fyrir erlenda stúdenta að fá lán hjá sjóðnum? Ef ekki, hvenær opnaðist sá möguleiki?
3. Hversu margir erlendir stúdentar fengu námslán á árunum 1990–2009?
4. Voru gerðar undanþágur frá því að ábyrgðarmenn væru á lánum erlendra stúdenta á árunum 1990–2009?
5. Var skilyrt að ábyrgðarmenn væru íslenskir á þessu tímabili?
Skriflegt svar óskast.