Ferill 644. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1133 — 644. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu oft fundaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál á árunum 2015–2017?
2. Eru skýringar á því hvers vegna mál bíða allt að 392 daga frá kæru og þar til úrskurður er kveðinn upp, líkt og kemur fram í skýrslu ráðherra um framkvæmd upplýsingalaga frá 29. maí 2018?
3. Telur ráðherra að það sé ásættanlegt að nefndarmenn úrskurðarnefndar um upplýsingamál starfi í hlutastarfi í ljósi þess hve langur meðalafgreiðslutími mála er hjá nefndinni?
4. Hvaða sjónarmið eru lögð til grundvallar varðandi forgangsröðun mála sem tekin eru til afgreiðslu hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál?
Skriflegt svar óskast.