Ferill 603. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1334 — 603. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ónýttan persónuafslátt.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver var heildarupphæð ónýtts persónuafsláttar þeirra sem rétt áttu á persónuafslætti samkvæmt lögum um tekjuskatt árin 2016 og 2017 og hve margir einstaklingar áttu ónýttan persónuafslátt við lok hvors árs? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftirfarandi aldurshópum:
a. 16–20 ára,
b. 21–25 ára,
c. 26–35 ára,
d. 36–50 ára,
e. 51–66 ára,
f. 67 ára og eldri.
Heildarupphæðir ónýtts persónuafsláttar og fjöldi einstaklinga með ónýttan persónuafslátt er sem hér segir:
Tafla 1: Ónýttur persónuafsláttur tekjuárið 2016.
| Aldurshópur | Fjöldi einstaklinga með ónýttan persónuafslátt |
Heildarupphæð ónýtts persónuafsláttar (millj. kr.) |
| 16–20 ára | 14.392 | 4.620 |
| 21–25 ára | 5.601 | 1.662 |
| 26–35 ára | 4.118 | 1.544 |
| 36–50 ára | 2.453 | 962 |
| 51–66 ára | 2.179 | 742 |
| 67 ára og eldri | 3.207 | 982 |
| Samtals | 31.950 | 10.512 |
Tafla 2: Ónýttur persónuafsláttur tekjuárið 2017.
| Aldurshópur | Fjöldi einstaklinga með ónýttan persónuafslátt |
Heildarupphæð ónýtts persónuafsláttar (millj. kr.) |
| 16–20 ára | 13.893 | 4.599 |
| 21–25 ára | 5.338 | 1.672 |
| 26–35 ára | 4.113 | 1.618 |
| 36–50 ára | 2.385 | 989 |
| 51–66 ára | 2.092 | 745 |
| 67 ára og eldri | 2.768 | 854 |
| Samtals | 30.589 | 10.477 |