Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1342 — 148. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um húsnæði ríkisins í útleigu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu stórt er húsnæði í eigu ríkisins sem leigt er öðrum aðilum en stofnunum í A-hluta ríkissjóðs, hve stór hluti þess er skrifstofuhúsnæði og hver er leigutaki?
2. Hvert hefur fermetraverð fyrrgreinds leiguhúsnæðis verið á árunum 2006–2018?
Í framhaldi af fyrirspurn þessari óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Ríkiseignum um húsnæði ríkisins í útleigu. Ríkiseignir er stofnun á vegum ráðuneytisins sem fer með stærstan hluta af fasteignum í eigu ríkisins. Í meðfylgjandi töflu er að finna samantekt á húsnæði í útleigu hjá Ríkiseignum ásamt þeim upplýsingum sem óskað var eftir í fyrirspurninni. Þá þótti of umfangsmikið að sundurliða fermetraverð aftur í tímann til ársins 2006 og því miðast fermetraverðið í yfirlitsskjalinu við leiguverðið árið 2017/2018.
Þess má geta að listinn er ekki tæmandi. Nokkuð er um eignir sem eru í sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga. Slíkar eignir eru oftar en ekki í umráðum viðkomandi sveitarfélaga eða stofnana á þeirra vegum án þess að fyrir það sé greidd leiga. Hér er einkum átt við eignir sem nýttar hafa verið í tengslum við skólahald, heilbrigðisstarfsemi og menningartengda starfsemi í opinberri þágu.
Þá er einnig nokkuð af íbúðarhúsnæði sem útvegað er fyrir stofnanir víðs vegar um landið sem endurleigt er starfsmönnum ríkisins. Langflestar þessara eigna eru á landsbyggðinni þar sem ríkið er með starfsemi. Í mörgum tilvikum er um að ræða íbúðir sem eru hluti af stofnanahúsnæði eins og húsnæði heilbrigðisstofnunar eða heimavistir skóla. Leigufjárhæð þessara eigna tekur mið af lögum um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins, nr. 27/1968, og reglugerð nr. 480/1992 um sama efni sem gildir sérstaklega um húsnæði sem notað er til íbúðar fyrir starfsmenn ríkisins.
| Leigutaki | Götuheiti og staðsetning | Tegund húsnæðis | Stærð m2 | Leiguverð á mánuði pr. m2 í kr. |
| Íslenskar orkurannsóknir | Grensásvegur 9, Reykjavík | Skrifstofuhúsnæði | 1.952 | 2.036 |
| Íslenskar orkurannsóknir | Grensásvegur 9, Reykjavík | Skrifstofuhúsnæði | 1.605 | 1.164 |
| Íslenskar orkurannsóknir | Borgartún 7, Reykjavík | Geymslushúsnæði | 190 | 549 |
| Matís | Árleyni 2A, Reykjavík | Geymslushúsnæði | 410 | 1.272 |
| Tækniskólinn ehf. | Háteigsvegur 35–39, Reykjavík | Kennsluhúsnæði | 7.496 | 894 |
| Tækniskólinn ehf. | Skólavörðuholt, Reykjavík | Kennsluhúsnæði | 14.891 | 894 |
| Listaháskóli Íslands | Laugarnesvegur 91, Reykjavík | Kennsluhúsnæði | 5.206 | 893 |
| Listaháskóli Íslands | Sölvhólsgata 13, Reykjavík | Kennsluhúsnæði | 1.908 | 902 |
| Handverks- og hússtjórnarskólinn | Hallormsstaður | Kennsluhúsnæði | 878 | 894 |
| Snorrastofa | Reykholt, Borgarfirði | Geymslushúsnæði | 181 | 537 |
| Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi | Skrifstofuhúsnæði | 40 | 1.057 |
| Nepal hugbúnaður ehf. | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi | Skrifstofuhúsnæði | 222 | 941 |
| Íslenska gámafélagið ehf. | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi | Skrifstofuhúsnæði | 15 | 1.602 |
| Ásthildur Magnúsdóttir | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi | Skrifstofuhúsnæði | 13 | 1.565 |
| Verkís hf. | Bjarnarbraut 8, Borgarnesi | Skrifstofuhúsnæði | 34 | 1.184 |
| IceWise ehf. | Héraðsskólinn Laugarvatni | Gistiheimili | 1.579 | 872 |
| Samsteypan ehf. | Austurvegur 28, Selfossi | Gistiheimili | 783 | 644 |
| Húsey ehf. | Austurvegur 4, Selfossi | Skrifstofuhúsnæði | 1 skrifstofa | 37.000 |
| Samband íslenskra myndlistarmanna | Seljavegur 32, Reykjavík | Vinnustofur | 1.500 | 544 |
| Heimilislæknastöðin ehf. | Lágmúli 4, Reykjavík | Heilsugæslustöð | 731 | 1.777 |
| Reykjavíkurborg | Tryggvagata 19, Reykjavík | Kolaportið | 2.423 | 1.070 |