Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 285  —  59. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um skilgreiningu á hugtökum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig eru eftirfarandi hugtök sem koma fyrir í 154. gr. almennra hegningarlaga skilgreind í samhengi þess ákvæðis í lögum:
                  a.      handhafabréf,
                  b.      erlendur peningaseðill,
                  c.      gjaldmiðill,
                  d.      að búa til,
                  e.      að flytja inn,
                  f.      að láta úti?

     2.      Gætu eftirfarandi fallið undir 154. gr. almennra hegningarlaga í einhverjum skilningi:
                  a.      spilapeningar úr Monopoly-spilinu,
                  b.      mjólkurmiðar gefnir út af skóla,
                  c.      ávísun á erlenda bankainnstæðu,
                  d.      útprentun á tölvupósti með loforði um greiðslu í framtíðinni,
                  e.      flugpunktar hjá flugfélagi sem heimilar millifærslur milli viðskiptavina,
                  f.      inneignarnóta frá verslun sem er stíluð á handhafa?


    Í fyrri tölulið fyrirspurnarinnar er óskað lögfræðilegrar álitsgerðar ráðherra um merkingu tiltekinna hugtaka sem fram koma í 154. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Þá er sérstaklega óskað upplýsinga um skilgreiningu hugtaka „í samhengi þess ákvæðis í lögum“, en það orðalag verður að skilja sem svo að óskað sé upplýsinga um hvort umrædd hugtök hafi aðra merkingu í almennum hegningarlögum en í öðrum lögum eða samkvæmt almennri málvitund. Í því sambandi er bent á að algengt er að ef hugtök hafa öðlast fastmótaða merkingu á tilteknu réttarsviði, svo sem í kröfurétti, er algengt að sama merking sé lögð til grundvallar á öðrum réttarsviðum, svo sem í refsirétti. Að öðru leyti er það dómstóla að ákvarða í tilteknu máli hvort einstök tilvik falli að hugtakaskilgreiningu og verknaðarlýsingu ákvæða almennra hegningarlaga.
    Í síðari tölulið fyrirspurnarinnar er óskað lögfræðilegrar álitsgerðar ráðherra um hvort nánar tiltekin tilvik geti fallið undir verknaðarlýsingu 154. gr. almennra hegningarlaga og teljist þar með refsiverð. Ítrekað er að það er verkefni dómstóla að meta í hverju tilfelli fyrir sig hvort háttsemi teljist varða við refsilöggjöf, en í því felst m.a. mat á því hvort háttsemi falli að verknaðarlýsingu ákvæðis.