Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 314 — 121. mál.
Leiðréttur texti.
Svar
umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Olgu Margréti Cilia um mengun af völdum plastnotkunar.
1. Hvernig fylgist ráðherra með notkun plasts á Íslandi og mengun af völdum hennar?
2. Hverjar hafa verið niðurstöður af mælingum á notkun plasts og mengun af völdum hennar undanfarin ár?
Til eru áreiðanlegar tölur frá Endurvinnslunni hf. og Úrvinnslusjóði yfir notkun plastumbúða, þ.e. magn umbúða sem settar eru á markað og afdrif þeirra, t.d. til endurvinnslu. Ekki eru til áreiðanlegar tölur yfir notkun annars plasts en plastumbúða. Umhverfisstofnun safnar þeim tölum saman frá þeim aðilum sem meðhöndla úrgang.
Tölfræði fyrir árin 2014, 2015 og 2016:
– Plastumbúðir á markað: 13.660 tonn (2014), 14.806 tonn (2015) og 15.029 tonn (2016).
– Plastumbúðir sem skiluðu sér til endurvinnslu: 4.478 tonn (2014), 5.511 tonn (2015) og 6.411 tonn (2016).
– Plastumbúðir sem skiluðu sér til brennslu með orkunýtingu (endurnýting): 423 tonn (2014), 39 tonn (2015) og 666 tonn (2016).
– Plastúrgangur (annar en plastumbúðir) sem skilaði sér til endurvinnslu: 193 tonn (2014), 171 tonn (2015) og 666 tonn (2016). Það er erfitt að leggja mat á hversu stór hluti þetta er af þeim plastúrgangi sem fellur til þar sem tölur yfir notkun vantar og töluverður hluti plastúrgangs fer að öllum líkindum með blönduðum úrgangsstraumum til förgunar.
Loks má þess geta að nýlega var tollflokkum fyrir plastumbúðir skipt upp þannig að hægt yrði að safna tölulegum upplýsingum um notkun einnota burðarplastpoka hér á landi. Alls voru flutt inn 156 tonn af innkaupapokum úr plasti árið 2017. Magntölur fyrir innlenda framleiðslu af innkaupapokum úr plasti eru ekki fáanlegar enn. Ráðuneytið vinnur að framfylgd tillagna sem finna má í skýrslu um burðarpoka úr plasti: www.stjornarradid.is/media/umhverfisraduneyti-media/media/PDF_skrar/Plastpokar-skyrsluskil-27.-juni-2016.pdf.
Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að fram hafi farið beinar mælingar á mengun af völdum plastnotkunar á Íslandi. Það er þó rétt að benda á verkefni þar sem umfang úrgangs á ströndum er reglulega kannað. Plast er þar sérstaklega skoðað en athuga ber að uppruni plastsins er ekki endilega frá notkun á Íslandi, heldur berst hluti þess að öllum líkindum að utan með hafstraumum. Verkefnið er hluti af alþjóðlegu verkefni á vegum OSPAR sem er samningur um verndun Norðaustur-Atlantshafsins. Fróðleik um þetta efni má finna á eftirfarandi hlekkjum:
– www.ust.is/einstaklingar/frettir/frett/2016/09/07/Voktun-a-rusli-a-strondum-hofst-i-sumar/
– www.ust.is/atvinnulif/haf-og-vatn/voktun/
– oap.ospar.org/en/ospar-assessments/intermediate-assessment-2017/pressures-human-activities/marine-litter/beach-litter/
– www.ospar.org/work-areas/eiha/marine-litter
Umhverfisstofnun mun skila skýrslu í vor um niðurstöðurnar fyrir íslenskar strendur.
Að lokum er rétt að benda á norræna rannsókn á örplasti í skólpi sem framkvæmd var m.a. á Íslandi:
– www.diva-portal.org/smash/get/diva2:923936/FULLTEXT01.pdf
3. Hvaða áætlanir eru í gildi um að draga úr slíkri mengun hér á landi?
Árið 2016 gaf ráðherra út stefnu um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun, sem hefur það að markmiði að draga úr myndun úrgangs og hráefnisnotkun og bæta nýtingu auðlinda. Árin 2016–2017 var áherslan á að draga úr sóun matvæla en næstu tvö ár verður áhersla lögð á að draga úr notkun plasts. Í nýsamþykktum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir: „Ráðist verður í langtímaátak gegn einnota plasti með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og hreinsun plasts úr umhverfi lands og stranda.“ Um þessar mundir vinnur ráðuneytið, í samvinnu við undirstofnanir, að útfærslu og fjármögnun tillagna til að draga úr notkun plasts hér á landi.
4. Hversu mikið af plasti sem hent er á Íslandi er endurunnið í dag?
Sjá svar við 1. tölulið fyrirspurnarinnar.