Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 418 — 310. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um fjarskiptamál á Hornströndum.
Frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur.
Áformar ráðherra að bæta fjarskiptasamband á Hornströndum með tilliti til öryggis sjófarenda og ferðamanna á svæðinu? Til hvaða þátta er horft í því sambandi?
Skriflegt svar óskast.