Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 649 — 451. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við rekstur kjararáðs.
Frá Þorsteini Víglundssyni.
1. Hver var á árunum 2014–2017 árlegur kostnaður við rekstur kjararáðs?
2. Hverjar voru greiðslur til kjararáðsmanna, sundurliðaðar á hvern ráðsmann eftir árum?
3. Hvernig er þóknun til ráðsmanna í kjararáði ákveðin?
4. Hver er aðkoma fjármála- og efnahagsráðuneytis að ákvörðunum um laun kjararáðs?
5. Hver var á árunum 2014–2017 launakostnaður kjararáðs, annar en þóknun til ráðsmanna? Hvaða stöðugildi eru þar á bakvið?
Skriflegt svar óskast.