Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 664  —  460. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjóðaröryggisráð, nr. 98/2016 (skipan þjóðaröryggisráðs).

Flm.: Þorsteinn Sæmundsson.


1. gr.

    Á eftir orðunum „forstjóri Landhelgisgæslunnar“ í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: tollstjóri.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að tollstjóri fái sæti í þjóðaröryggisráði sem mælt er fyrir um í lögum nr. 98/2016. Samkvæmt lögunum eiga í sæti ráðinu forsætisráðherra, ráðherra sem fer með utanríkis- og varnarmál og ráðherra sem fer með almannavarnir, auk ráðuneytisstjóra viðkomandi ráðuneyta, ríkislögreglustjóra, forstjóra Landhelgisgæslunnar og fulltrúa Landsbjargar. Þá er kveðið á um að í ráðinu eigi einnig sæti tveir þingmenn, annar úr þingflokki sem skipar meiri hluta á þingi en hinn úr þingflokki minni hluta.
    Þjóðaröryggisráði er ætlað að hafa eftirlit með því að þjóðaröryggisstefnu sé fylgt og vera samráðsvettvangur um þjóðaröryggismál. Ráðinu er m.a. falið að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum, fjalla um önnur málefni sem varða þjóðaröryggi, beita sér fyrir opinni og lýðræðislegri umræðu um þjóðaröryggismál og eflingu fræðslu og upplýsingagjafar um þau mál.
    Tollstjóra eru með lögum falin ýmis verkefni sem varða öryggi þjóðarinnar, svo sem vörslu á landamærum Íslands í höfnum og á flugvöllum og eftirlit með varningi og einstaklingum sem til Íslands rata. Það er því í verkahring tollstjóra að leitast við að hindra að til Íslands rati óæskileg efni, vopn og önnur vá. Einnig er það eitt af verkefnum tollstjóra að stunda forvirkar rannsóknir sem varða farþega, póstsendingar, almennar sendingar og stærri frakt. Ljóst er að ef utanaðkomandi vá vofir yfir gegnir tollstjóri mikilvægu hlutverki í því að gera nauðsynlegar ráðstafanir á landamærum til þess að lágmarka hættu. Viðbúnaður á landamærum verður ekki aukinn nema með aðkomu tollstjóra. Með því að tryggja tollstjóra sæti í þjóðaröryggisráði eru ráðinu tryggðar nauðsynlegar upplýsingar og sérþekking til að sinna lögbundnu hlutverki sínu og bein aðkoma tollstjóra er tryggð að þeim málum sem varða öryggi þjóðarinnar sem getur flýtt fyrir réttum viðbrögðum ef vá ber að höndum. Það hníga því sterk rök að því að tollstjóri eigi fast sæti í þjóðaröryggisráði.