Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 779  —  428. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um endurskoðun á lyfjalögum.


     1.      Hyggst ráðherra endurflytja 677. mál frá 145. þingi, frumvarp til lyfjalaga (heildarlög, EES-reglur)?
    Í velferðarráðuneytinu er nú unnið að heildarendurskoðun á lyfjalögum og er við þá vinnu haft til hliðsjónar það frumvarp sem lagt var fram á 145. þingi. Ekki liggur fyrir hvenær frumvarpið verður lagt fram á Alþingi að nýju.

     2.      Hyggst ráðherra endurskoða hvort hægt sé að heimila sölu lausasölulyfja utan lyfjabúða, t.d. í dreifbýli?
    Eins og greint er frá í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar er unnið að heildarendurskoðun á lyfjalögum. Að svo stöddu er ekki hægt að gera grein fyrir einstökum efnisatriðum í þeirri vinnu.