Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 786 — 332. mál.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um notkun akstursbóka í bifreiðum Alþingis og greiðslur dagpeninga til forseta Alþingis.
Rétt er að taka fram að í 2. gr. laga um þingfararkaup og þingfararkostnað, nr. 88/1995, segir að forseti Alþingis njóti sömu launa- og starfskjara og ráðherrar. Þannig greiðir Alþingi allan ferðakostnað forseta eins og ráðuneyti greiða allan ferðakostnað ráðherra.
Alþingi á þrjár bifreiðar, viðhafnarbifreið og tvo smájeppa, annar til notkunar í þágu þingsins (sendiferðir, aðdrættir o.s.frv.) og hins vegar smájeppa sem forseti notar venjulega.
Akstur þessara bifreiða er mjög hóflegur.
Þingvörður ekur forseta eftir þörfum, og í öllum opinberum erindum, en forsetar hafa jafnan kosið að aka sjálfir styttri ferðir og hvorki núverandi né fyrrverandi forsetar hafa óskað eftir því að ráðinn yrði sérstakur forsetabílstjóri.
1. Er akstursbók í bifreiðum Alþingis og er hver bók fyllt nákvæmlega út þannig að gerð sé grein fyrir öllum aksturserindum?
Nei. Ekki hefur verið talin þörf á slíku, né það talið eiga við, sbr. það sem að ofan greinir um eðli þessarar bifreiðanotkunar.
2. Er akstursbók í viðhafnarbifreið Alþingis, er hún fyllt nákvæmlega út og er gerð skilmerkileg grein fyrir öllum aksturserindum?
Nei. Ekki hefur verið talin þörf á slíku, né það eiga við enda er hún fyrst og fremst notuð til að aka gestum Alþingis og forseta við hátíðleg tækifæri.
3. Fylgist innra eftirlit Alþingis með því hvort forsetar Alþingis nota bifreiðar þingsins sem þingmenn kjördæma eða eingöngu vegna erinda sem þeim eru falin sem forsetar þingsins? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir notkun bifreiðanna í þessu tilliti frá árinu 2006.
Ekki er gerður neinn greinarmunur á því hvort forseti notar bifreið þingsins til erinda Alþingis eða starfa hans sem kjörinn þingmaður. Að þessu leyti gildir hið sama um forseta og ráðherra. Engin skrá er haldin um slíkan akstur, en þess má geta að núverandi forseti hefur eingöngu notað smájeppa Alþingis til ferðalaga á höfuðborgarsvæðinu.
4. Eru bifreiðar Alþingis notaðar til að aka forseta Alþingis út á flugvöll og sækja hann þegar hann fer til útlanda á vegum Alþingis? Ef svo er, endurgreiðir forseti Alþingis þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að greiða fyrir þennan kostnað? Óskað er eftir árlegu yfirliti frá árinu 2006 þar sem gerð er grein fyrir endurgreiðslunum.
Bifreiðar Alþingis eru notaðar til að aka forseta Alþingis út á flugvöll þegar hann fer til útlanda á vegum þingsins, í opinberum ferðum. Forseta hafa ekki verið gerðir reikningar fyrir aksturinn, sbr. það sem áður greinir með vísan í 2. gr. laga nr. 88/1995, um þingfararkaup og þingfararkostnað.
5. Hefur forsetum Alþingis verið reiknað hlunnindamat vegna notkunar bifreiða Alþingis frá árinu 2006? Hefur einhvern tíma komið upp sú staða að slíkt hlunnindamat þurfi að reikna?
Nei. Um hlunnindamat fer eins og um notkun ráðherra á bifreiðum Stjórnarráðsins.
6. Hafa styrkir og hvers konar hlunnindi varðandi gistingu og fæði, sem forseti Alþingis nýtur meðan á dvöl hans erlendis stendur, komið til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum eftir því sem við á? Óskað er eftir árlegu yfirliti, sem sýnir fjölda ferða forseta Alþingis frá árinu 2006, árlegar heildardagpeningagreiðslur og árlegar endurgreiðslur dagpeninga vegna fyrrgreinds, og yfirliti yfir annan ferðakostnað sem greiddur hefur verið á sama tíma.
7. Ef fyrrgreindur hluti dagpeninga hefur ekki verið endurgreiddur, hvers vegna hefur það ekki verið gert?
Þegar gestgjafi greiðir gistingu eru greiddir skertir dagpeningar. Framkvæmd í þessu efni kann þó að hafa verið eitthvað mismunandi yfir tímabilið. Sjá að öðru leyti yfirlit hér á eftir yfir ferðir forseta Alþingis allt frá árinu 2006.
Yfirlit yfir ferðir forseta Alþingis 2006–2017.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.