Ferill 430. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 861  —  430. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um plastáætlun Norðurlanda.


     1.      Hver er staðan á sameiginlegri áætlun Norðurlandanna frá maí 2017 um að banna örplast í snyrtivörum?
    Á fundi sínum 2. maí 2017 samþykktu umhverfisráðherrar Norðurlanda norræna áætlun um að draga úr umhverfisáhrifum plasts. Framtíðarsýn áætlunarinnar er að framvegis beri að framleiða, nýta og endurvinna plast í hringrásarkerfi sem skaði hvorki heilsu manna né umhverfið. Áætlunin, sem er stefnumarkandi, byggist á fyrri samnorrænum aðgerðum í plastmálum og er sett fram til að auka þekkingu á málefninu, leggja drög að aðgerðum og stuðla að samlegðaráhrifum, auknu samstarfi og vitundarvakningu á Norðurlöndum. Undir áætlunina heyra sex stefnumótandi áherslusvið fyrir norrænt samstarf um sjálfbæra plastnotkun sem eru:
     a.      fyrirbyggjandi aðgerðir gegn myndun plastúrgangs og stuðningur við hönnun sem stuðlar að endurnýtingu, lengri líftíma og endurnotkun,
     b.      árangursrík kerfi fyrir meðhöndlun úrgangs og aukin endurvinnsla plastúrgangs,
     c.      samstarf um að stöðva plastmengun í hafinu og finna hagkvæmar lausnir til hreinsunar,
     d.      að efla þekkingu á örplasti og greina aðgerðir til að draga úr losun þess út í umhverfið,
     e.      að efla þekkingu á umhverfisáhrifum lífplasts, þ.e. plasts unnu úr lífmassa, og lífbrjótanlegs plasts í samanburði við hefðbundið plast,
     f.      að efla þekkingu á efnum sem valda vandræðum í tengslum við endurvinnslu plasts.
    Starfsemi og verkefni sem falla undir plastáætlunina verða fyrst og fremst fjármögnuð af norrænu ráðherranefndinni og þeim hrint í framkvæmd á vegum hennar. Norræna embættismannanefndin um umhverfis- og loftslagsmál ber meginábyrgð á áætluninni og hafa vinnuhópar á vegum nefndarinnar umsjón með framkvæmd áætlunarinnar. Utanaðkomandi samstarfsaðilar, svo sem stjórnvöld, rannsóknarstofnanir, atvinnulífið og félagasamtök, geta einnig komið að framkvæmd áætlunarinnar. Auk þess að marka stefnu í aðgerðum sem draga úr plastmengun á Norðurlöndum er áætlunin einnig framlag Norðurlanda til framkvæmdar á alþjóðasamningum, þar á meðal heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna nr. 12 og 14 og átaki Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna ( UN Environment) gegn úrgangi í hafi sem ber yfirskriftina CleanSeas og er ætlað að hvetja stjórnvöld, fyrirtæki og almenning til aðgerða sem stuðla að hreinni höfum. Þá sýnir áætlunin einnig skuldbindingu Norðurlandanna til að innleiða ályktanir umhverfisþings Sameinuðu þjóðanna ( UNEA) um úrgang og örplast í hafi (Resolution 1/6 og Resolution 2/11).
    Áætlun norrænu ráðherranefndarinnar um að draga úr áhrifum plasts má finna á slóðinni:
norden.diva-portal.org/smash/record.jsf?pid=diva2%3A1143432&dswid=585. Hinn 27. september 2017 sendi umhverfis- og auðlindaráðuneytið þeim sem sinna plastmálefnum, sjálfbærri neyslu og framleiðslu, verndun hafsins og úrgangsforvörnum hérlendis áætlunina til upplýsingar.
    Í tengslum við hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem var haldin í júní árið 2017 lýstu mörg ríki yfir vilja sínum til að stefna að því að banna örplast í snyrtivörum þar sem það er meðal mengunarefna sem geta haft neikvæð áhrif á lífríki hafsins. Norðurlöndin öll hvert um sig voru meðal þeirra, þar á meðal Ísland. Með viljayfirlýsingu sinni vildu ráðherrar vekja athygli á örplastmengun frá þessum vörum sem langflest fólk notar oft á degi hverjum. Viljayfirlýsingarnar byggjast ekki síst á því að nokkur umræða hefur verið um örplastmengun af notkun snyrtivara sem fólk notar í daglegu lífi. Á Íslandi hafa ekki verið gerðar rannsóknir á magni örplasts frá snyrtivörum í umhverfinu en reikna má með að magn þess sé hlutfallslega það sama og á Norðurlöndum. Í Danmörku hefur verið gerð skýrsla þar sem birt er yfirlit yfir helstu uppsprettur örplasts í umhverfinu og skiptast þær sem hér segir: Dekk 60%, skófatnaður (sólar) 7,3%, skipamálning 7,1%, vegamálning 5,1% og önnur málning 4,2%. Aðrar uppsprettur eru um 17% og þar af koma 0,1% frá snyrtivörum. Rannsóknir frá Noregi og Svíþjóð sýna svipaðar niðurstöður. Eins og fram kemur er örplast sem berst út í umhverfið frá snyrtivörum einungis brot af heildarmagni örplasts í umhverfinu.
     Cosmetic Europe eru samtök meira en 4.000 fyrirtækja og félaga sem framleiða snyrti- og hreinlætisvörur. Samtökin hafa mælst til þess við aðildarfélög og fyrirtæki að hætta notkun örplasts í snyrtivörum í síðasta lagi árið 2020 ef önnur efni eru fáanleg.

     2.      Eru einhverjar áætlanir um að koma fyrir örplastsíum í skolphreinsistöðvum hérlendis og hefur farið fram kostnaðarmat þar að lútandi?
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er kveðið á um eflingu rannsóknarstarfs, stuðning við nýsköpun og varnir gegn plastmengun í hafi. Kveðið er á um að ráðist verði í langtímaátak gegn einnota plasti með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og hreinsun plasts úr umhverfi lands og stranda. Gera þurfi átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga en veruleg þörf sé á uppbyggingu í þessum málaflokki.
    Ljóst er að hér á landi er skortur á upplýsingum um örplast í fráveitum og því er þörf á að rannsaka málið og kortleggja það. Þó hefur Ísland tekið þátt í norrænu samstarfsverkefni með Svíþjóð og Finnlandi: norden.diva-portal.org/smash/get/diva2:923936/FULLTEXT01.pdf. ">norden.diva-portal.org/smash/get/diva2:923936/FULLTEXT01.pdf. Meðal annars voru öragnir í fráveitu í Klettagörðum og Hafnarfirði skoðaðar. Rannsakað var hvort skolphreinsistöðvar væru gátt fyrir öragnir út í umhverfið, magn öragna í viðtakanum (hafinu) metið við útfallsrör og upplýsingum safnað saman svo að hægt væri að meta áhrif þeirra á lífverur. Helstu niðurstöður voru að gróf síun á skolpi fæli í sér takmarkaða hreinsun á örögnum og að enginn munur væri á fjölda öragna í inn- og útflæði í íslenskum sýnum. Þá lét Reykjavíkurborg taka saman minnisblað í nóvember árið 2016 um nokkur atriði sem varða örplast í skolpi á höfuðborgarsvæðinu, einkum með tilliti til möguleika á hreinsun örplasts úr skolpinu. Jafnframt var metinn kostnaður við þær aðgerðir sem líklegar eru til að tryggja viðunandi hreinsun: reykjavik.is/sites/default/files/usk_orplast.pdf. Meginniðurstöður eru þær að við núverandi aðstæður hreinsar fráveitukerfi höfuðborgarsvæðisins lítið sem ekkert af örplasti úr skolpi. Fullkomnar hreinsistöðvar myndu ná að hreinsa úr skolpi langstærstan hluta þess örplasts sem þangað berst. Nú eru einkum tvær aðferðir notaðar til að hreinsa örplast úr skolpi, en það eru settjarnir eða síukerfi. Til fróðleiks má einnig benda á danska skýrslu um örplast í skolpi: mst.dk/media/143341/partnerskab-om-mikroplast-i-spildevand-2017.pdf. ">mst.dk/media/143341/partnerskab-om-mikroplast-i-spildevand-2017.pdf.
    Samkvæmt lögum nr. 9/2009, um uppbyggingu og rekstur fráveitna, bera sveitarfélög ábyrgð á uppbyggingu fráveitna.
    Ekki hafa verið gerðar áætlanir um hreinsun örplasts úr skolpi á Íslandi. Áður en til slíks kæmi þyrftu að liggja fyrir upplýsingar um magn og uppruna örplasts á landinu og leiðir þess til sjávar. Í ráðuneyti umhverfis- og auðlindamála er verið að undirbúa slíka úttekt. Vert er að benda á að um leið og tekst að hreinsa þorra örplastsins úr fráveituvatninu er jafnframt að miklu leyti búið að koma í veg fyrir losun ýmissa annarra mengandi efna út í viðtaka.