Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 889 — 372. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra.
1. Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra annars vegar og þeirra ráðherra sem fóru með málefnasvið hans og hins vegar ráðuneytisstjóra þessara sömu ráðuneyta til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins?
Eftirfarandi tafla sýnir árlegan fjölda ferða atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fyrirrennara hans annars vegar og hins vegar ráðuneytisstjóra til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins frá árinu 2006.
Tölur vegna ráðuneytisstjóra í svörum við þessari fyrirspurn eiga við um ráðuneytisstjóra eftirfarandi ráðuneyta: sjávarútvegsráðuneytis 2006–2007, landbúnaðarráðuneytis 2006–2007, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis 2008–2012, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis 2006–2007, iðnaðarráðuneytis 2007–2012, viðskiptaráðuneytis 2007–2009, efnahags- og viðskiptaráðuneytis 2009–2012 og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis 2012–2017.
| Fjöldi ferða ráðherra | Fjöldi ferða ráðuneytisstjóra | |
| 2006 | 18 | 20 |
| 2007 | 13 | 21 |
| 2008 | 12 | 19 |
| 2009 | 4 | 6 |
| 2010 | 5 | 8 |
| 2011 | 7 | 10 |
| 2012 | 9 | 9 |
| 2013 | 5 | 6 |
| 2014 | 5 | 5 |
| 2015 | 12 | 3 |
| 2016 | 9 | 5 |
| 2017 | 13 | 7 |
2. Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga hvors um sig vegna þessara ferða?
Fjallað er um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins í reglum fjármálaráðuneytisins nr. 1/2009. Þar kemur fram að ráðherrum og forseta Hæstaréttar skuli greiddir 2/ 3 hlutar dagpeninga en 1/ 3 hluti dagpeninga ef um opinbera heimsókn er að ræða. Auk þess skal þeim greiddur ferða- og gistikostnaður, risnukostnaður og símakostnaður. Í eldri reglum um greiðslu ferðakostnaðar, nr. 39/1992, kom fram að ráðherrum og forseta Hæstaréttar skyldu greiddir fullir dagpeningar. Auk þess skyldi greiða ferða- og gistikostnað, risnukostnað og símakostnað. Samkvæmt sömu reglum skyldi ráðuneytisstjórum, auk fleiri sem sérregla gilti um, greiddir 4/ 5 hlutar fullra dagpeninga, auk ferða-, gisti- og símakostnaðar. Með breytingunni árið 2009 lækkaði fjárhæð dagpeninga vegna ferða ráðherra, sem endurspeglar m.a. þann kostnað sem óhjákvæmilega fellur til vegna ferðalaga og dagpeningagreiðslum er ætlað að standa undir. Að sama skapi var sérregla ráðuneytisstjóra og fleiri afnumin.
Eftirfarandi tafla sýnir hve háar árlegar greiðslur dagpeninga atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fyrirrennara hans annars vegar og hins vegar ráðuneytisstjóra þeirra ráðuneyta sem nú heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti voru frá árinu 2006.
| Dagpeningar ráðherra | Dagpeningar ráðuneytisstjóra | |
| 2006 | 1.936.473 | 1.750.130 |
| 2007 | 1.088.128 | 1.163.197 |
| 2008 | 1.143.193 | 1.894.161 |
| 2009 | 1.013.138 | 597.141 |
| 2010 | 512.513 | 889.888 |
| 2011 | 928.456 | 1.286.447 |
| 2012 | 0 | 903.831 |
| 2013 | 263.505 | 337.109 |
| 2014 | 535.348 | 417.615 |
| 2015 | 1.339.339 | 425.145 |
| 2016 | 676.050 | 419.605 |
| 2017 | 1.128.991 | 320.498 |
3. Hversu oft á hverju ári fengu ráðherra og ráðuneytisstjóri 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
Reglur nr. 1/2009, um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins, tóku gildi 6. mars 2009. Skv. 9. gr. reglnanna gildir reglan um greiðslu á 1/ 3 hluta og 2/ 3 hlutum dagpeninga einungis vegna ferða ráðherra og forseta Hæstaréttar. Eftirfarandi tafla sýnir hversu oft, á ári hverju, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fyrirrennarar hans annars vegar og hins vegar ráðuneytisstjóri fengu 1/ 3 hluta dagpeninga greiddan og hve oft 2/ 3 hluta.
| Ráðherra 1/3 | Ráðherra 2/3 | Ráðuneytis-stjóri 1/3 | Ráðuneytis-stjóri 2/3 | |
| 2006 | Á ekki við | 12 | ||
| 2007 | Á ekki við | 12 | ||
| 2008 | Á ekki við | 15 | ||
| 2009 | 3 | 3 | ||
| 2010 | 4 | Á ekki við | ||
| 2011 | 4 | Á ekki við | ||
| 2012 | 0 | Á ekki við | ||
| 2013 | 3 | Á ekki við | ||
| 2014 | 5 | Á ekki við | ||
| 2015 | 12 | Á ekki við | ||
| 2016 | 9 | Á ekki við | ||
| 2017 | 13 | Á ekki við |
4. Hverjar voru árlegar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra, vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
Eftirfarandi tafla sýnir árlegar fjárhæðir, skipt á atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fyrirrennara hans og ráðuneytisstjóra þeirra ráðuneyta sem nú heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar frá árinu 2006. Frá september 2012 til maí 2013 var einn ráðherra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ferðakostnaði vegna hans er skipt jafnt á milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
| Ráðherra | Ráðuneytisstjóri | |||
| Hótelgisting | Ferðakostnaður | Hótelgisting | Ferðakostnaður | |
| 2006 | 1.079.172 | 2.860.350 | 812.966 | 2.751.246 |
| 2007 | 650.166 | 1.652.340 | 383.513 | 2.670.390 |
| 2008 | 685.920 | 1.902.247 | 1.101.611 | 2.555.125 |
| 2009 | 411.602 | 789.165 | 236.401 | 815.228 |
| 2010 | 412.197 | 746.580 | 263.354 | 997.038 |
| 2011 | 485.921 | 1.335.680 | 43.538 | 1.654.397 |
| 2012 | 407.633 | 1.656.167 | 147.327 | 1.011.140 |
| 2013 | 114.291 | 875.423 | 338.708 | 919.990 |
| 2014 | 245.707 | 1.739.258 | 529.072 | 805.405 |
| 2015 | 1.059.027 | 4.318.601 | 0 | 411.639 |
| 2016 | 504.212 | 1.574.031 | 43.060 | 765.144 |
| 2017 | 1.051.717 | 1.597.526 | 178.096 | 662.406 |
5. Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra eða ráðuneytisstjóra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytisins og í hve mörgum tilfellum endurgreiddu þeir þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
Ráðherra er ekið út á flugvöll í bifreið ráðuneytisins þegar um er að ræða ferðir á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóra er ekki ekið í bifreið ráðuneytisins nema hann ferðist með ráðherra. Dagpeningar eru ekki skertir vegna ferða í ráðherrabifreið út á flugvöll.
6. Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem þeir nutu erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
Engar upplýsingar liggja fyrir í ráðuneytinu um styrki eða hlunnindi ráðherra eða ráðuneytisstjóra í embættiserindum erlendis. Ekki er vitað til þess að styrkir eða hlunnindi hafi komið til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum.