Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 921 — 506. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um opinber störf utan höfuðborgarsvæðisins.
1. Hversu mörg störf eru á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og stofnana þess utan höfuðborgarsvæðisins? Óskað er eftir sundurliðun eftir stofnunum og landshlutum.
Stofnanir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins er heyra undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
| Matvælastofnun | 66 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Vesturland | 3 | Staðsettir á Hvanneyri |
| Vestfirðir | 1 | Staðsettur á Ísafirði |
| Norðurland vestra | 8 | Staðsettir á Sauðárkróki og Hólum í Hjaltadal |
| Norðurland eystra | 8 | Staðsettir á Akureyri |
| Austurland | 1 | Staðsettur á Egilsstöðum |
| Suðurland | 45 | Staðsettir á Selfossi, Hvolsvelli og Höfn í Hornafirði |
| Fiskistofa | 30 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Vesturland | 4 | Staðsettir á Stykkishólmi |
| Vestfirðir | 2 | Staðsettir á Ísafirði |
| Norðurland eystra | 18 | Staðsettir á Akureyri |
| Suðurland | 6 | Staðsettir á Hornafirði og í Vestmannaeyjum |
| Hafrannsóknastofnun | 26 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Vesturland | 4,6 | Staðsettir í Ólafsvík |
| Vestfirðir | 7 | Staðsettir á Ísafirði |
| Norðurland vestra | 3,4 | Staðsettir á Hvammstanga og Skagaströnd |
| Norðurland eystra | 2 | Staðsettir á Akureyri |
| Suðurland | 4 | Staðsettir á Selfossi og í Vestmannaeyjum |
| Suðurnes | 5 | Staðsettir í Grindavík |
Stofnanir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins er heyra undir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:
| Ferðamálastofa | 6 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Norðurland eystra | 6 | Staðsettir á Akureyri |
| Orkustofnun | 3 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Norðurland eystra | 3 | Staðsettir á Akureyri |
| Nýsköpunarmiðstöð | 9 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Vestfirðir | 2 | Staðsettir á Ísafirði |
| Norðurland vestra | 2 | Staðsettir á Sauðárkróki |
| Norðurland eystra | 3 | Staðsettir á Akureyri |
| Austurland | 1 | Staðsettur á Djúpavogi |
| Suðurland | 1 | Staðsettur í Vestmannaeyjum |
| Samkeppniseftirlitið | 0 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Einkaleyfastofa | 0 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
| Neytendastofa | 0 | Starfsmenn utan höfuðborgarsvæðis |
2. Telur ráðherra að unnt sé að láta vinna fleiri störf á vegum ráðuneytisins eða stofnana þess utan höfuðborgarsvæðisins?
Eins og fram kemur í svari við 1. tölul. þá eru flestar stofnanir ráðuneytisins með starfsemi á landsbyggðinni. Höfuðstöðvar Fiskistofu eru á Akureyri og höfuðstöðvar Matvælastofnunar eru á Selfossi. Auk þess eru báðar þessar stofnanir með starfsemi víða um land. Það er því ljóst að aukist umfang í starfsemi framangreindra stofnana kallar það á fjölgun starfa utan höfuðborgarsvæðisins.
3. Hyggst ráðherra færa störf út á land á vegum ráðuneytisins eða stofnana þess, sbr. markmið byggðaáætlunar og áform ríkisstjórnarinnar í samstarfssáttmála um að stefna skuli að því að auglýsa störf án staðsetningar?
Ráðherra mun beita sér fyrir því að stofnanir ráðuneytisins starfi í samræmi við þá stefnu sem fram kemur í byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar og samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar.