Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 989 — 369. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Dómsmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra svara fyrirspurninni sameiginlega á sameiginlegu fjárlagatímabili innanríkisráðuneytisins sem var frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2017. Svörin eiga hins vegar eingöngu við um dómsmálaráðuneytið á öðrum tímabilum sem fyrirspurnin tekur til.
1. Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða dómsmálaráðherra annars vegar og þeirra ráðherra sem fóru með málefnasvið hans og hins vegar ráðuneytisstjóra þessara sömu ráðuneyta til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytisins?
Í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir árlegan fjölda ferða ráðherra annars vegar og ráðuneytisstjóra hins vegar á umræddu tímabili.
| Fjöldi ferða ráðherra | Fjöldi ferða ráðuneytisstjóra | |
| 2006 | 9 | 0 |
| 2007 | 8 | 0 |
| 2008 | 8 | 0 |
| 2009 | 3 | 0 |
| 2010 | 4 | 0 |
| 2011 | 7 | 7 |
| 2012 | 14 | 10 |
| 2013 | 8 | 10 |
| 2014 | 7 | 9 |
| 2015 | 7 | 8 |
| 2016 | 0 | 14 |
| 2017 | 5 | 8 |
2. Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga hvors um sig vegna þessara ferða?
Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir greiðslur dagpeninga vegna ráðherra annars vegar og ráðuneytisstjóra hins vegar á árabilinu 2006–2017. Í reglum fjármálaráðuneytisins nr. 1/2009 er fjallað um greiðslu ferðakostnaðar á vegum ríkisins. Þar kemur m.a. fram að ráðherrum skuli greiddir 2/ 3 hlutar dagpeninga, en 1/ 3 hluti dagpeninga ef um opinbera heimsókn er að ræða. Auk þess skal þeim greiddur ferða- og gistikostnaður, risnukostnaður og símtöl. Samkvæmt eldri reglum um greiðslu ferðakostnaðar, nr. 39/1992, voru ráðherrar á fullum dagpeningum en að auki var greiddur ferða- og gistikostnaður, risnukostnaður og símtöl. Samkvæmt sömu reglum skyldi ráðuneytisstjórum, auk fleiri sem sérregla gilti um, greiddir 4/ 5 hlutar fullra dagpeninga, auk ferða-, gisti- og símakostnaðar. Með breytingunni árið 2009 lækkaði fjárhæð dagpeninga vegna ferða ráðherra. Að sama skapi var sérregla ráðuneytisstjóra og fleiri afnumin. Ráðherra er þó heimilt samkvæmt tilvitnuðum reglum að víkja frá meginreglunni og ákveða að starfsmönnum ríkisins verði greiddur gistikostnaður og helmingur dagpeninga.
| Dagpeningar ráðherra | Dagpeningar ráðuneytisstjóra | |
| 2006 | 839.297 | 0 |
| 2007 | 798.212 | 0 |
| 2008 | 1.524.245 | 0 |
| 2009 | 231.148 | 0 |
| 2010 | 285.223 | 0 |
| 2011 | 1.005.647 | 1.259.656 |
| 2012 | 1.815.692 | 1.198.869 |
| 2013 | 1.182.522 | 1.564.128 |
| 2014 | 678.392 | 792.153 |
| 2015 | 699.976 | 616.313 |
| 2016 | 0 | 1.040.413 |
| 2017 | 724.056 | 714.195 |
3. Hversu oft á hverju ári fengu ráðherra og ráðuneytisstjóri 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
Reglan um greiðslu á 1/ 3 hluta og 2/ 3 hlutum á eingöngu við um ferðir ráðherra, en hún tók ekki gildi fyrr en árið 2009 og því á spurningin ekki við um árin 2006–2008. Fjöldi ferða þar sem greitt var vegna ráðherrareglu var sem að neðan greinir árin 2006–2017.
| Ráðherra 1/3 | Ráðherra 2/3 | |
| 2006 | Á ekki við | Á ekki við |
| 2007 | Á ekki við | Á ekki við |
| 2008 | Á ekki við | Á ekki við |
| 2009 | 3 | |
| 2010 | 4 | |
| 2011 | 3 | |
| 2012 | ||
| 2013 | ||
| 2014 | 7 | |
| 2015 | 7 | |
| 2016 | ||
| 2017 | 5 |
Á árunum 2011–2013 óskaði ráðherra eftir að þiggja dagpeninga eftir almennri reglu og nýta dagpeninga til þess að standa undir kostnaði á gistingu.
4. Hverjar voru árlegar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra, vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
Meðfylgjandi tafla sýnir yfirlit yfir árlegar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna hótelgistingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar.
| Ráðherra | Ráðuneytisstjóri | ||||
| Dvalarkostnaður | Ferðakostnaður | Dvalarkostnaður | Ferðakostnaður | ||
| 2006 | 523.867 | 1.151.189 | |||
| 2007 | 400.434 | 1.183.260 | |||
| 2008 | 573.639 | 1.588.635 | |||
| 2009 | 124.913 | 533.970 | |||
| 2010 | 141.853 | 759.550 | |||
| 2011 | 342.664 | 881.179 | 107.441 | 1.027.684 | |
| 2012 | 351.224 | 1.734.193 | 1.374.276 | ||
| 2013 | 233.535 | 1.716.218 | 106.489 | 1.452.958 | |
| 2014 | 535.717 | 930.617 | 740.506 | 1.494.975 | |
| 2015 | 407.497 | 1.404.242 | 727.387 | 1.365.856 | |
| 2016 | 409.835 | 1.591.805 | |||
| 2017 | 262.326 | 1.856.102 | 386.373 | 1.122.133 | |
5. Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra eða ráðuneytisstjóra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytisins og í hve mörgum tilfellum endurgreiddu þeir þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. reglugerðar nr. 1281/2014, um bifreiðamál ríkisins, skal ríkið leggja ráðherrum ríkisstjórnarinnar til bifreið til afnota vegna starfa sinna. Af því leiðir að ráðherra er jafnan ekið til flugvallar í bifreið ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóra hefur á hinn bóginn ekki sérstaklega verið ekið til flugvallar í bifreið ráðuneytisins.
6. Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem þeir nutu erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
Samkvæmt 7. gr. reglna nr. 1/2009 skulu styrkir og hvers konar hlunnindi varðandi gistingu og fæði sem ríkisstarfsmenn njóta meðan á dvölinni stendur koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum eftir því sem við á og unnt er að meta hverju sinni. Á ferðalögum ráðherra og/eða ráðuneytisstjóra ber við að gestgjafi eða sá aðili sem hýsir fund bjóði veitingar eða standi fyrir kurteisisviðburði sem hæfir tilefninu. Hefð hefur ekki skapast fyrir því að leggja sérstakt mat á umfangið þannig að það hafi leitt til frádráttar frá almennum dagpeningagreiðslum.