Ferill 440. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 998  —  440. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um rekstrarkostnað Nýs Landspítala ohf.


     1.      Hver var árlegur rekstrarkostnaður Nýs Landspítala ohf. (NLSH) frá stofnun 1. júlí 2010 til ársloka 2017 eftir árum? Hvernig skiptist sá kostnaður í:
              a.      laun og hlunnindagreiðslur hvert ár og hver voru hlunnindin,
              b.      ferðakostnað og risnu og kostnað við stjórn hvert ár,
              c.      annan kostnað hvert ár?
     2.      Hver er áætlaður rekstrarkostnaður NLSH árið 2018? Hvernig skiptist sá kostnaður í:
              a.      laun og hlunnindagreiðslur og hver eru hlunnindin,
              b.      ferðakostnað og risnu og kostnað við stjórn,
              c.      annan kostnað?

    Frá 2010 hefur starfsemi NLSH ohf. tekið miklum breytingum. Á árunum 2010 til 2013 var unnið að forhönnun bygginga og deiliskipulagsgerð í framhaldi af samkeppnisniðurstöðu. Engir launaðir starfsmenn störfuðu við félagið fyrr en árið 2016, er byrjað var á fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans og fyrstu verklegu framkvæmdirnar hófust. Verkefnastjórum og starfsmönnum hefur fjölgað í samræmi við umfang verkefna, en nú starfa sjö manns hjá NLSH ohf. Laun starfsmanna NLSH ohf. taka mið af sambærilegum störfum fagmenntaðs tæknifólks, m.a. hjá Framkvæmdasýslu ríkisins.
    Ferðakostnaður innifelur allan bókfærðan innlendan og erlendan ferðakostnað og bókfærð risna er í samræmi við reglur um risnukostnað hjá ríkisstofnunum. Í neðangreindri töflu er að finna heildarkostnað verkefnis við hönnun og byggingu nýs spítala við Hringbraut í Reykjavík frá því að NLSH ohf. var sett á laggirnar.
    Hafa verður í huga að verkefnið er opinber framkvæmd, þannig að undir liðnum Annar kostnaður er allur kostnaður ríkissjóðs af undirbúningi, hönnun og byggingu hins nýja spítala. Þó að hönnunar- og byggingarkostnaður bókist árlega hjá félaginu er ríkissjóður en ekki félagið eigandi hönnunar og mannvirkja.
    Tölurnar eru gefnar upp í milljónum króna á ársvísu og verðlagi hvers árs. Tölurnar fyrir árið 2018 eru áætlunartölur.

2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Laun 0 0 0 0 0 0 58 73 106
Hlunnindi 0 0 0 0 0 0 0 0 0
Ferðakostnaður 0 1,9 0,6 0 0 0,3 1,9 2,4 3,1
Risna 0 0,1 0,1 0 0 0,2 0,4 0,6 0,6
Stjórnarkostnaður 0,3 1,6 1,6 1,8 2,0 2,0 3,6 4,6 4,5
Annar kostnaður 123 585 527 69 71 249 1.157 1.820 3.309
Heildarkostnaður 123 589 529 71 73 252 1.221 1.900 3.423


     3.      Hver eru heildarlaun framkvæmdastjóra skipt í laun og hlunnindi og hver eru hlunnindin?
    Kjararáð úrskurðaði um laun framkvæmdastjóra Nýs Landspítala ohf. með úrskurði nr. 2016.4.004. Mánaðarlaun framkvæmdastjóra félagsins skyldu vera samkvæmt launaflokki 502-135, nú 925.854 kr. Að auki skyldu honum greiddar 40 einingar á mánuði fyrir alla yfirvinnu og álag er starfinu fylgir. Heildarlaun framkvæmdastjóra samkvæmt úrskurðinum eru nú 1.308.774 kr. Stjórn NLSH ohf. hefur ekki breytt launakjörum framkvæmdastjóra umfram niðurstöðu kjararáðs. Framkvæmdastjóri NLSH ohf. fær engin hlunnindi.

     4.      Hver verður starfsemi NLSH að uppbyggingu nýs Landspítala lokinni?
    Ekki liggur fyrir formleg ákvörðun um það hvað gert verður við félagið að verkefninu loknu en gera má ráð fyrir að félagið verði lagt niður þegar lögbundnu hlutverki þess lýkur.