Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1014 — 602. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um fjölda nema í iðn- og verknámi.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hversu margir sóttu um að hefja iðn- og verknám hér á landi á árunum 2010–2019 og hversu margar umsóknir voru samþykktar?
2. Hversu margir luku iðn- og verknámi hér á landi á árunum 2010–2019?
Svar óskast sundurliðað eftir skólaári og skóla.
Skriflegt svar óskast.