Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1054 — 509. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um Vesturlínu og Dýrafjarðargöng.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Verður Vesturlína lögð um Dýrafjarðargöng? Ef svo er, hvenær verður línan tekin í notkun og hvað ræður tímasetningunni á því?
Um nokkurt skeið hafa verið til skoðunar möguleikar á því hvernig bæta megi afhendingaröryggi raforku á norðanverðum Vestfjörðum. Jarðstrengur með raflínu um Dýrafjarðargöng mun spila hlutverk í þeirri styrkingu. Lagning jarðstrengja um Dýrafjarðargöng er hafin. Þar er um að ræða annars vegar 132 kV raflínu í eigu Landsnets og hins vegar 11 kV raflínu í eigu Orkubús Vestfjarðar sem mun tengja Þingeyri við Mjólká. Þar með tengist Þingeyri við Mjólká, bæði með jarðstreng og loftlínu.
Hvort jarðstrengur Landsnets í gegnum Dýrafjarðargöng verði hluti af nýrri raflínu á milli Mjólkár og Breiðadals eða hluti af núverandi línu er enn þá óákveðið. Verkefnið er á 10 ára kerfisáætlun Landsnets í samræmi við stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, en nákvæm tímasetning um hvenær línan verður tekin í notkun liggur ekki fyrir.