Ferill 589. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1271 — 589. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Kolbeini Óttarssyni Proppé um birtingu viðskiptaboða og kostun dagskrárefnis á RÚV.
1. Hvaða reglur hefur RÚV sett sér um birtingu viðskiptaboða og kostun dagskrárefnis, eins og kveðið er á um í 7. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013.
Á vef Ríkisútvarpsins eru birtar reglur sem stjórn félagsins hefur sett um auglýsingabirtingar. Þar koma meðal annars fram ákvæði um skilyrði fyrir birtingu auglýsingar, auglýsingar hagsmunasamtaka, stjórnmálaflokka og stuðningsmanna flokka, einstakra málefna og einstaklinga, kostun, rof dagskrárliða og hlutfall viðskiptaboða auk annarra atriða í samræmi við fjölmiðlalög, nr. 38/2011, lög um Ríkisútvarpið, nr. 23/2013, úrskurði fjölmiðlanefndar, ákvarðanir útvarpsstjóra og stjórnar Ríkisútvarpsins. Í 6. gr. reglanna um kostun, rof dagskrárliða og hlutfall viðskiptaboða (viðmið) segir:
„Heimilt er að afla tekna með kostun dagskrárliða í eftirfarandi tilvikum:
a. við útsendingu íburðarmikilla dagskrárliða til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningarrétti,
b. við útsendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllunar um þá.
Heimilt er að rjúfa dagskrárliði með viðskiptaboðum í sjónvarpi í eftirfarandi tilvikum:
a. við útsendingu íburðarmikillar dagskrár,
b. við útsendingu eigin framleiðslu sem er a.m.k. 60 mínútur að lengd.
Til íburðarmikilla dagskrárliða skv. a-liðum 1. og 2. mgr. teljast dagskrárliðir sem falla undir einn eða fleiri eftirfarandi flokka:
– útsendingar stórviðburða á borð við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Söngvakeppni, Menningarnótt og söfnunarútsendingar fyrir góðgerðarmál, svo og afleidda dagskrá að því gættu að kostun, sbr. 1. mgr., sé seld í einu lagi;
– viðamiklar útsendingar (mann- og kostnaðarfrekar) frá mörgum stöðum samtímis;
– stórmót í íþróttum, innanlands sem erlendis, svo sem Landsmót hestamanna, heimsmeistara- og Evrópukeppnir, smáþjóðaleikar, Norðurlandamót, heimsbikarmót og útsláttarkeppnir, svo og afleidd dagskrá að því gættu að kostun, sbr. 1. mgr., sé seld í einu lagi og að því marki sem b-liður 1. mgr. á ekki við;
– þættir og þáttaraðir, einkum leikið efni og heimildarþættir, framleidd af sjálfstæðum framleiðendum eða í formi samframleiðslu, þar sem framleiðslu- eða innkaupakostnaður RÚV nemur að lágmarki 30 milljónum króna á ársgrundvelli (yfir 12 mánaða tímabil) og tekur sú fjárhæð breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs og skal grunnvísitala miðast við janúar 2017; og
– eigin framleiðsla RÚV, í formi leikinna verka fyrir sjónvarp og/eða hljóðvarp eða gerð heimildarþátta(-raða), þar sem framleiðslukostnaður RÚV nemur að lágmarki 30 milljónum króna á ársgrundvelli (yfir 12 mánaða tímabil) og tekur sú fjárhæð breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs og skal grunnvísitala miðast við janúar 2017.
Til íburðarmikilla dagskrárliða skulu ekki taldir þeir dagskrárliðir sem teljast til eigin framleiðslu RÚV og eru hefðbundnir liðir í reglulegri sjónvarps- og/eða útvarpsdagskrá, svo sem hefðbundið afþreyingarefni á borð við umræðu- og spjallþætti, spurningakeppnir og einstakir heimildarþættir.
Ákvæði þetta tekur jafnframt til netútsendinga.
Upplýsingar um kostaða dagskrárliði og rof dagskrárliða hvers rekstrarárs eru aðgengilegar í ársskýrslu RÚV sem birt er á vef félagsins.“
Frekari upplýsingar eru á vef Ríkisútvarpsins www.ruv.is/auglysingar/reglur.
2. Samræmast þær reglur 7. gr. umræddra laga og markmiðum laganna?
Reglurnar eru að mati ráðuneytisins í samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga, nr. 38/2011, laga um Ríkisútvarpið, nr. 23/2013, og úrskurðum fjölmiðlanefndar um álitamál er komið hafa upp um kostun dagskrárefnis í Ríkisútvarpinu. Fjölmiðlanefnd hefur ekki gert athugasemdir við reglurnar.
3. Samræmist fjármögnun Samtaka fjármálafyrirtækja og Landssamtaka lífeyrissjóða á fræðsluþætti um fjármál fyrir ungt fólk á RÚV reglum um birtingu viðskiptaboða og kostun dagskrárefnis annars vegar og lögum nr. 23/2013 hins vegar?
Umrætt dagskrárefni er til athugunar hjá fjölmiðlanefnd. Ráðuneytið telur ekki ástæðu til að taka afstöðu til þessa máls á meðan það er til umfjöllunar hjá fjölmiðlanefnd, sem samkvæmt 17. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, hefur eftirlit með framkvæmd 7. gr. þeirra laga.
4. Hve mikið styrktu umrædd samtök þáttagerðina?
Þáttagerðin var styrkt um 1.400.000 kr.
5. Hve mikla fjármuni hefur RÚV fengið í kostun frá fyrirtækjum, samtökum eða einstaklingum síðustu fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um ræðir framleiðslu, þætti eða dagskrárliði.
Ríkisútvarpinu er heimilt að afla tekna með kostun dagskrárliða í eftirfarandi tilvikum:
a. við útsendingu íburðarmikilla dagskrárliða til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningarrétti,
b. við útsendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllunar um þá.
Langmestur hluti þess efnis sem er kostað er íþróttaefni, stórviðburðir og leikið íslenskt efni. Tekjur Ríkisútvarpsins vegna kostunar á því efni sem heimilt er að kosta hafa verið eftirfarandi síðustu fimm ár:
2015: 210 millj. kr.
2016: 193 millj. kr.
2017: 165 millj. kr.
2018: 175 millj. kr.
2019: 121 millj. kr.
Tölurnar eru á verðlagi í lok árs 2019.
Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisútvarpi er ekki flokkað í bókhaldi þess hvort það eru fyrirtæki, samtök eða einstaklingar sem kosta efni og af þeim sökum ekki hægt að verða við ósk um þannig sundurliðun í svari þessu.
Í árlegum ársskýrslum Ríkisútvarpsins er kostun flokkuð eftir dagskrárliðum en ekki eftir framleiðslu eða þáttum eins og sjá má á yfirliti um þá dagskrárliði sem voru kostaðir á árinu 2018: Bikarkeppni í handbolta, Bikarkeppni í körfubolta, Bikarkeppni í blaki, EM í frjálsum íþróttum, HM í knattspyrnu, EM í sundi, Eurovision og Söngvakeppnin og tengd dagskrá, Hestaíþróttir, HM í frjálsum íþróttum, EM í handbolta, HM félagsliða, HM og heimsbikarmót í skíðaíþróttum, Íslandsmótið í fimleikum, Íslandsmótið í keilu, Íslandsmótið í golfi og golfmótaröðin, Landsleikir í fótbolta, Landsleikir í handbolta, Landsleikir í körfubolta, Meistaradagar í íþróttum, Menningarnótt, Mótorsport, Ófærð, Reykjavíkurleikarnir, Reykjavíkurmaraþon, Skólahreysti og Vetrarólympíuleikar.
Eftirtaldir dagskrárliðir voru kostaðir á árinu 2017: Alla leið, Álfukeppnin í fótbolta, Bikarkeppni í handbolta, Bikarkeppni í körfubolta, Bikarkeppni í blaki, EM í frjálsum íþróttum, EM kvenna í fótbolta, HM í sundi, Eurovision, Fangar, Hestaíþróttir, HM í frjálsum íþróttum, HM í handbolta, HM félagsliða, HM og heimsbikarmót í skíðaíþróttum, Íslandsmótið í fimleikum, Íslandsmótið í keilu, Íslandsmótið í golfi og golfmótaröðin, Íslandsmótið í handbolta, Íþróttamaður ársins, Landsleikir í fótbolta, Landsleikir í handbolta, Landsleikir í körfubolta, Meistaradagar í íþróttum, Menningarnótt, Mótorsport, Reykjavíkurleikarnir, Reykjavíkurmaraþon, Skólahreysti, Söfnunarútsending og Söngvakeppnin.
Eftirtaldir dagskrárliðir voru kostaðir á árinu 2016: Akureyrarvaka, Alla leið, Bikarkeppni í handbolta, Bikarkeppni í körfubolta, Bikarkeppni í blaki, EM í frjálsum íþróttum, EM í sundi, Eurovision, Fangar, Gettu betur*, Hestaíþróttir, HM í frjálsum íþróttum, HM í handbolta, HM og heimsbikarmót í skíðaíþróttum, Hraðfréttir*, Íslandsmótið í fimleikum, Íslandsmótið í badminton, Íslandsmótið í golfi og golfmótaröðin, Íslandsmótið í handbolta, Íþróttaafrek Íslendinga, Íþróttamaður ársins, Landsleikir í fótbolta, Landsleikir í handbolta, Landsleikir í körfubolta, Ligeglad, Menningarnótt, Ófærð, Ólympíuleikarnir og Ólympíumót fatlaðra, Popp- og rokksaga Íslands*, Reykjavíkurleikarnir, Reykjavíkurmaraþon, Sjónvarpið í 50 ár, Skíðamót Íslands, Skólahreysti, Söngvakeppnin, Söngvakeppnin í 30 ár*, Útsvar*, Vikan með Gísla Marteini*.
Upplýsingar um kostun árið 2015 eru ekki fyrirliggjandi og þá er verið að vinna að ársskýrslu fyrir árið 2019 þar sem fram munu koma upplýsingar um hvaða efni var kostað á því ári.
* Kostun á stjörnumerktum dagskrárliðum hefur verið aflögð í samræmi við nýjar auglýsingareglur RÚV.