Ferill 793. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1548  —  793. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins?
    Í 4. tölul. 4. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, er heilsugæsla skilgreind sem almennar lækningar, hjúkrun, heilsuvernd og forvarnir, bráða- og slysamóttaka og önnur heilbrigðisþjónusta sem veitt er á vegum heilsugæslustöðva. Í 15. gr. er sérstaklega kveðið á um að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sinni heilsugæslu í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins skuli jafnframt taka að sér kennslu heilbrigðisstétta á grundvelli samninga við háskóla og aðrar menntastofnanir, háskólasjúkrahús eða kennslusjúkrahús og stunda vísindarannsóknir á sviði heilsugæslu.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Fjárlög gera ráð fyrir 11.313,2 millj. kr. til rekstrar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á þessu ári. Fjárheimildin er ætluð til að sinna verkefnum heilsugæslunnar og er ekki sundurliðuð sérstaklega.