Ferill 789. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1626  —  789. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni ráðuneytisins.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir ráðuneytið?
    Ráðuneytið er hluti af Stjórnarráði Íslands, skrifstofa ráðherra og æðsta stjórnvald framkvæmdarvaldsins á málefnasviði sínu, sbr. 1. og 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Ráðuneytið fer á hverjum tíma með málefni í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Samkvæmt 6. gr. forsetaúrskurðarins fer heilbrigðisráðuneytið með mál er varða:
     1.      Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.
     2.      Sjúkratryggingar almannatrygginga, þar á meðal:
                  a.      Sjúklingatryggingu.
                  b.      Slysatryggingu almannatrygginga.
                  c.      Sjúkratryggingastofnun.
     3.      Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:
                  a.      Heilsugæslu.
                  b.      Sjúkrahús.
                  c.      Heilbrigðisstofnanir.
                  d.      Sérhæfða heilbrigðisþjónustu utan stofnana.
                  e.      Endurhæfingarstarfsemi og meðferðarstofnanir.
                  f.      Lyf.
                  g.      Ávana- og fíkniefni.
                  h.      Lækningatæki.
                  i.      Lyfjastofnun.
                  j.      Lyfjagreiðslunefnd.
                  k.      Tæknifrjóvgun.
                  l.      Sjúkraskrár og gagnasöfn á heilbrigðissviði.
                  m.      Réttindi sjúklinga.
                  n.      Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu.
                  o.      Embætti landlæknis.
                  p.      Heyrnar- og talmeinastöð.
                  q.      Hjúkrunarheimili.
                  r.      Dvalarheimili.
                  s.      Dagdvöl aldraðra.
                  t.      Framkvæmdasjóð aldraðra.
     4.      Lýðheilsu og forvarnir, þar á meðal:
                  a.      Heilsueflingu.
                  b.      Áfengis- og vímuefnavarnir.
                  c.      Slysavarnir.
                  d.      Sóttvarnir.
                  e.      Tóbaksvarnir.
                  f.      Rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
                  g.      Bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum.
                  h.      Geislavarnir.
                  i.      Geislavarnir ríkisins.
     5.      Lífvísindi og lífsiðfræði, þar á meðal:
                  a.      Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
                  b.      Vísindasiðanefnd.
                  c.      Lífsýnasöfn.
                  d.      Líffæragjafir og líffæraígræðslu.
                  e.      Ákvörðun dauða, dánarvottorð og krufningar.
     6.      Annað, þar á meðal:
                  a.      Græðara.
                  b.      Þungunarrof.
                  c.      Ófrjósemisaðgerðir.
                  d.      Ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir.
    Á grundvelli stöðu sinnar sem æðsta handhafa framkvæmdarvaldsins fer ráðherra með almennar stjórnunar- og eftirlitsheimildir gagnvart stjórnvöldum sem heyra undir hann, sbr. 12. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, enda leiði ekki af lögum að stjórnvald skuli vera sjálfstætt starfandi gagnvart ráðherra. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laganna skal ráðherra hafa eftirlit með starfrækslu, fjárreiðum og eignum á vegum stjórnvalda sem heyra undir almennar stjórnunarheimildir hans. Ráðherra hefur jafnframt virkt eftirlit með framkvæmd fjárlaga á málefnasviði sínu og ber ábyrgð á því að ráðstöfun fjárheimilda sé innan þess ramma sem Alþingi ákveður, sbr. 3. mgr. 27. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál.
    Samkvæmt 2. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, fer heilbrigðisráðherra með yfirstjórn heilbrigðismála. Þá fer heilbrigðisráðherra með yfirstjórn sjúkratrygginga og samningsgerð um heilbrigðisþjónustu og aðra aðstoð samkvæmt lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar.

     7.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna ráðuneytisins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til heilbrigðisráðuneytis samkvæmt fylgiriti fjárlaga 2020 eru 836,9 millj. kr. Fjárveitingar eru ekki sundurliðaðar eftir lögbundnum verkefnum ráðuneytis í fjárlögum.