Ferill 727. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1638 — 727. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun, nr. 95/2018 (endurgreiðslur).
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Við 1. gr.
a. Á eftir orðunum „heimilt að“ í 1. málsl. 1. efnismgr. komi: bjóðast til að.
b. Á eftir orðunum „að sömu fjárhæð“ í 2. efnismgr. komi: að viðbættum dráttarvöxtum.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Til að fullnusta kröfur þeirra sem falla undir ákvæði þetta og hafa hafnað inneignarnótu skv. 1. mgr. er skipuleggjanda eða smásala heimilt að nýta tryggingarfé skv. 2. mgr. 24. gr. þrátt fyrir að ekki hafi komið til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar viðkomandi, enda mundi viðkomandi að öðrum kosti fara í gjaldþrot eða lenda í rekstrarstöðvun.