Ferill 745. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1727  —  745. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Jafnréttisstofu.


     1.      Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Jafnréttisstofa?
    Lögbundið hlutverk Jafnréttisstofu er skilgreint í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, og lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði, nr. 86/2018.

     2.      Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Jafnréttisstofu og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
    Heildarfjárveiting til Jafnréttisstofu samkvæmt fylgiriti fjárlaga fyrir árið 2020 er 119,2 millj. kr. vegna ársins 2020 og er nýtt til að sinna lögbundnum verkefnum embættisins. Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum heldur er gerð grein fyrir skiptingu fjárheimilda málefnasviða og málaflokka í fjárlögum niður á stofnanir og sérstök verkefni í fylgiriti fjárlaga. Jafnréttisstofa heyrir undir málefnasvið 32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála og málaflokk 32.20 Jafnréttismál.