Ferill 820. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1783 — 820. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lögbundin verkefni Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
1. Hvaða lögbundnu verkefnum sinnir Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins?
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins starfar samkvæmt lögum um sjóðinn, nr. 61/1997, sjá slóð: www.althingi.is/lagas/nuna/1997061.html.
2. Hver er áætlaður heildarkostnaður lögbundinna verkefna Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og hver er áætlaður kostnaður hvers verkefnis samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2020?
Kostnaði er ekki deilt niður á hvert lögbundið verkefni í fjárlögum heldur er gerð grein fyrir fjárheimildum vegna hvers málefnasviðs og málaflokks og þeim skipt niður í fjárveitingar til einstakra verkefna og ríkisaðila sem birtast í fylgiriti fjárlaga hverju sinni. Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins er B-hluta stofnun og fær engar fjárveitingar frá ríkinu heldur er reksturinn fjármagnaður með sértekjum.