Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 192 — 144. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur um sölu á ríkisjörðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða ríkisjarðir hafa verið seldar frá og með árinu 2000 og hvert var söluverðið? Óskað er eftir að nöfn jarða, landnúmer, söluverð og söludagsetning séu tilgreind.
2. Hverjir voru kaupendur jarðanna sem spurt er um í 1. tölul.? Óskað er eftir að tilgreind séu nöfn og kennitölur þeirra kaupenda sem unnt er að upplýsa um, hvort sem um ræðir einstaklinga eða fyrirtæki.
3. Hversu stórar voru jarðirnar í fjölda hektara?
4. Hverjum jarðanna fylgdu:
a. vatnsréttindi,
b. veiðiréttindi,
c. námuréttindi,
d. jarðhitaréttindi,
e. réttindi til hagnýtingar gróðurs,
f. réttindi til nýtingar reka,
g. réttindi til hagnýtingar jarðrænna auðlinda?
Óskað er eftir að tilgreint sé nánar hver réttindin voru í hverju tilviki.
5. Í hvaða tilvikum hélt ríkið eftir réttindum við sölu jarðanna með tilvísun í 40. gr. jarðalaga og um hvaða réttindi var að ræða?
Í meðfylgjandi yfirliti eru nánari upplýsingar um hvaða jarðir auk lóða og landa hafa verið seldar frá árinu 2000 til ársins 2019 auk upplýsinga um söluverð á þáverandi verðlagi, dagsetningu kaupsamnings og kaupendur. Í yfirlitinu er hins vegar ekki finna upplýsingar um allar sölur á ríkisjörðum til ábúenda í samræmi kaupheimildir ábúenda samkvæmt jarðalögum. Samantekt á sölum til ábúenda á þessu tímabili krefst nánari úrvinnslu á vegum ráðuneytisins og Ríkiseigna.
Frá árinu 1907 hafa verið ákvæði í lögum sem heimila ríkinu að undanskilja tiltekin auðlindaréttindi við sölu ríkisjarða. Samkvæmt 40. gr. jarðalaga, nr. 81/2004, er heimilt við sölu ríkisjarða að undanskilja jarðefni, rétt til efnistöku umfram búsþarfir og einnig öll vatns- og jarðhitaréttindi. Slík auðlindaréttindi hafa um langt skeið nær undantekningarlaust verið undanskilin við sölu ríkisjarða.
Ríkiseignir vinna að frekari greiningu um auðlindakosti á ríkisjörðum og þeim réttindum sem ríkið hefur haldið eftir á seldum jörðum. Mikilvægt er að mati ráðuneytisins að þessar grunnupplýsingar liggi fyrir vegna áframhaldandi stefnumótunar á þessu sviði.
Sala á jörðum og spildum 2000–2019.
| Sala á vegum | Staður | Stærð, hektarar | Dags. kaups. | Kaupandi | Söluverð, kr. |
|
|
|
|
|
02.12.00 | Magnea Jónasdóttir o.fl. | 10.228.000 | |
| LAN | Framnes, Kaldrananeshreppi | 08.01.01 | Framnes ehf. | 6.600.000 | ||
| LAN | Minni-Ólafsvellir, Skeiðahr. | 05.03.01 | Sigrún Einarsdóttir | 6.826.000 | ||
| LAN | Kvoslækur, Fljótshlíð | 16.03.01 | Kvoslækur ehf. | 24.400.000 | ||
| LAN | Eyjar, Breiðdalshreppi | 28.06.01 | Þröstur Elliðason | 5.400.000 | ||
| LAN | Gröf, Dalvíkurbyggð | 09.07.01 | Helgi Valdimarsson | 8.500.000 | ||
| LAN | Hrærekslækur, Tunguhreppi | 13.07.01 | Hrærekslækur ehf. | 4.652.000 | ||
| LAN | Bjarnarnes I, Höfn | 20.07.01 | Gunnar S. Skarphéðinsson | 1.400.000 | ||
| LAN | Hjalli, Reykdælahreppi | 66 | 31.08.01 | Aðalsteinn Þorsteinsson | 10.700.000 | |
| LAN | Hæringsstaðir, Eyjafjarðarsýslu | 30.11.01 | Gunnlaugur Þorsteinsson | 6.400.000 | ||
| LAN | Vestra-Stokkseyrarsel, Árborg | 28.12.01 | Eld-Járn ehf. o.fl. | 4.666.000 | ||
| LAN | Bárustaðir, Borgarfirði | 120 | 08.03.02 | Sigurborg Á. Jónsdóttir | 12.500.000 | |
| FJR | Hluti Fífuhvamms, Kópavogi | 51,5 | 22.04.02 | Kópavogsbær | 700.000.000 | |
| LAN | Geitafell, Kirkjuhvolshreppi | 26.06.02 | Geitafell ehf. | 3.750.000 | ||
| LAN | Fell, Breiðdalshreppi | 12.08.02 | Randver Á. Elísson | 8.300.000 | ||
| LAN | Knappstaðir, Fljótahreppi | 08.10.02 | Hulda Erlingsdóttir | 3.030.000 | ||
| LAN | Ásvellir, Fljótshlíðarhreppi | 10.10.02 | Sigrún Jónsdóttir | 12.498.000 | ||
| LAN | Krókur, Borgarhöfn 4 | 12.11.02 | Guðlaugur J. Þorsteinsson | 4.194.000 | ||
| LAN | Ásar, Saurbæjarhreppi | 17.02.03 | Dóróthea Sigvaldadóttir | 5.514.000 | ||
| LAN | Sandvík, Bárðardal | 01.06.03 | Þorvaldur Ingvarsson | 9.848.000 | ||
| LAN | Fyrirbarð, Skagafirði | 05.06.03 | Marteinn Haraldsson | 6.501.000 | ||
| LAN | Búlandshöfði, Grundarfirði | 09.09.03 | Þráinn Númason | 6.400.000 | ||
| LAN | Straumur, Dalabyggð | 200 | 15.10.03 | Kapall hf. | 24.200.000 | |
| LAN | Sandhóll, Skaftárhreppi | 03.02.04 | Guðm. B. Jónsson | 6.500.000 | ||
| LAN | Kolfreyja, Fáskrúðsfirði | 16.02.04 | Jörgen J. Jörgensen | 2.300.000 | ||
| LAN | Kirkjubók, Ísafjarðarbæ | 13.05.04 | Jón G. Magnússon ofl. | 8.150.000 | ||
| LAN | Brekkusel, Hróarstungu | 18.05.04 | Guðmundur Aðalsteinsson | 7.140.000 | ||
| LAN | Kvíarhóll A, Ölfusi (lóð) | 5,1 | 18.06.04 | Sigurður Sigurðsson | 28.501.000 | |
| LAN | Hólagerði 1 og 2, Fáskrúðsf. | 14.10.04 | Örn Ísebarn | 9.000.000 | ||
| FJR |
Neðra nikkelsvæði, Reykjanesi | 20.10.04 | Húsagerðin ehf. | 150.000.000 | ||
| LAN | Kvíarhóll C, Ölfusi (lóð) | 14.10.04 | Helgi Eggertsson | 7.052.000 | ||
| LAN | Hærukollsnes, Djúpavogshreppi | 25.11.04 | Halldór Hannesson ofl. | 10.066.000 | ||
| LAN | Skógar 2, Húsavíkurbæ | 10.03.05 | Lífsval ehf. | 21.299.000 | ||
| LAN | Langholt, Skaftárhreppi | 29.03.05 | Sigmar Eiríksson | 16.509.000 | ||
| LAN | Fornhagi 2, Hörgárbyggð | 23.09.06 | Anna G. Grétarsdóttir | 9.200.000 | ||
| LAN | Sveinsstaðir, Grímsey | 27.10.05 | Birna Óladóttir | 2.500.000 | ||
| LAN | Álftagróf, Mýrdalshreppi | 03.11.05 | Haraldur Ólason | 25.100.000 | ||
| LAN | Kvíarhóll B, Ölfusi (lóð) | 10.01.06 | S3 ehf. | 12.501.000 | ||
| LAN | Kvíarhóll E, Ölfusi (lóð) | 26.05.06 | Sveinbjörn Jónsson | 18.200.000 | ||
| LAN | Bakki, Ólafsfirði | 30.05.06 | Runólfur Gíslason | 7.150.000 | ||
| LAN | Skriða, Breiðdalshreppi | 10.10.06 | Stefán E. Stefánsson | 4.630.000 | ||
| FJR | Framnes, Reyðarfirði | 2 | 11.10.06 | Fjarðabyggð | - | Vegna sölu á landi til Fjarðabyggðar |
| FJR | Sómastaðagerði, Reyðarfirði | 11.10.07 | Fjarðabyggð | - | ||
| FJR | Sómastaðir, Reyðarfirði | 11.10.08 | Fjarðabyggð | - | ||
| FJR | Hraun, Reyðarfirði | 11.10.09 | Fjarðabyggð | - | ||
| FJR | Flateyri, Reyðarfirði | 11.10.10 | Fjarðabyggð | - | ||
| FJR | Hólmar, Reyðarfirði | 11.10.11 | Fjarðabyggð | - | ||
| FJR | Fjarðabyggð samtals | 53.000.000 | ||||
| LAN | Borg í Skriðdal | 26.01.07 | Þóra S. Jónsdóttir | 31.100.000 | ||
| FJR | Litli-Sandur, Hvalfirði (spilda) | 01.05.07 | Olíudreifing ehf. | 21.445.000 | ||
| FJR | Mið- og Litli-Sandur Hvalfirði (spilda) | 01.05.07 | Hvalur hf. | 10.031.000 | ||
| LAN | Stóri-Bakki, Hróarstungu | 28.06.07 | Baldur Grétarsson | 15.000.000 | ||
| LAN | Svarðbæli, Húnaþing vestra | 09.07.07 | Davíð Þ. Bjarnason | 25.200.000 | ||
| FJR | Eignarland nr. 3, Grindavík | 233 | 22.10.07 | Grindavíkurkaupstaður | 50.000.000 | |
| LAN | Hleinargarður, Eiðaþinghá | 16.11.07 | Byggingarfélagið Óseyri 16 ehf. | 47.100.000 | ||
| LAN | Kollafjarðarnes, Strandabyggð | 16.11.07 | Kirkjuhvoll ehf. | 67.700.000 | ||
| LAN | Tunga í Fljótshlíð | 15.01.08 | Magnús Gottfreðsson o.fl | 40.000.000 | ||
| SAM | Spildur á Helluflugvelli | 3,4 | 15.01.09 | Rangárþing ytra | 6.703.000 | |
| SLR | Kirkjuferjuhjáleiga 3, Ölfusi | 30,6 | 01.10.09 | Sorpstöð Suðurlands | 9.297.000 | |
| SLR | Grund, Skaftárhreppi | 07.01.10 | Pálmar Harðarson | 28.333.000 | ||
| SLR | Hvoll 2, Ölfusi | 31.05.11 | Bergþór Andrésson o.fl. | 28.333.000 | ||
| Ríkiseignir | Iðnaðarsvæði Grindavík | 15,7 | 15.6.15 | Grindavíkurbær | 29.905.482 | |
| FJR/Ríkiseignir | Hlíðarberg, Hornafirði | 16,5 | 10.9.15 | Ásthildur Gísladóttir | 8.800.000 | |
| FJR/Ríkiseignir | Barð, landr. 146777, Skagafirði | 12.11.15 | Símon I. Gestsson | 20.912.003 | ||
| FJR/Ríkiseignir | Litli Kambur Snæfellsbær | 190 | 12.1.16 | Snæfellsjökull Glacier Tours ehf. | 25.060.000 | F2114039 |
| FJR/Ríkiseignir | Ingjaldshóll, neðri hluti, Snæfellsnes | 289 | 21.10.16 | Snæfellsbær | 17.500.000 | F2114157 |
| FJR/VEL | Vífilsstaðir, land | 202,4 | 19.4.17 | Garðabær | 558.600.000 | F2068986 |
| FJR/Ríkiseignir | Höskuldsstaðir, Þingeyjarsveit | 274 | 24.2.17 | Dýralækningaþjónusta Bárðar | 22.250.000 | F2163844 |
| FJR/Ríkiseignir | Litluvellir, Bárðardal | 913 | 25.7.17 | Hulda Rós Hilmdardóttir o.fl. | 20.000.000 | F2162519 |
| FJR/Ríkiseignir | Fell og Keldudalur, Mýrdalshreppi | 982 | 21.3.18 | Skógræktarfélag Reykjavíkur | 53.050.000 | F2187892/ F2262018 |
| FJR/Ríkiseignir | Lóðir við Staðarborg, Breiðadalshreppi | 2,6 | 23.3.18 | AS Hótel | 1.800.000 | L158962/ L158963/158964 |
| FJR/Ríkiseignir | Stóri Bakki/Félagsrækt, Fljótdalshreppi | 7,8 | 28.6.18 | Bryndís Ágústa Svavarsdóttir | 9.600.000 | F2339810 |
| FJR/Ríkiseignir | Kirkjubær, Fljótsdalshérað | 31.8.18 | Ómar Örn Erlingsson o.fl. | 57.000.000 | F2133778 | |
| FJR/Ríkiseignir | Strönd-Rofabær, Skaftárhreppi | 489 | 28.9.18 | Viðar Björgvinsson | 36.000.000 | L163428/ L163427 |
| FJR/Ríkiseignir | Hamarshjáleiga, Flóahreppi | 160 | 29.1.18 | Hilmar Elís Árnason | 12.635.560 | F165485 |
| FJR/Ríkiseignir | Skinnastaðir, Húnavatnshreppi | 427 | 10.8.18 | Vignir Filip Vigfússon | 36.567.750 | F2136497 |
| FJR/Ríkiseignir | Jaðar, Hornafirði | 31,5 | 13.12.18 | Jón Malmquist Einarsson | 3.168.490 | L160130 |
| FJR/Ríkiseignir | Tjörn, Vatnsnesi | 442 | 4.2.19 | Elmar Baldursson o.fl. | 42.150.000 | F2134938 |
| FJR/Ríkiseignir | Efri Ey 2 og hl. Efri Ey 3, Skaftárhreppi | 325 | 8.5.19 | I-14 ehf. | 43.000.000 | F2189071/ F2189084 |
| Ath. vegna sölu á Vífilsstöðum. Til viðbótar grunnsöluverði á ríkissjóður 60% hlut af byggingarmagni allra lóðarspildna umfram það byggingarmagn þegar er gert ráð fyrir. | ||||||