Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 521 — 258. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Sigurði Páli Jónssyni um lögskráningu sjómanna og siglingatíma.
1. Með hvaða hætti er haldið utan um lögskráningu sjómanna?
Í gildi eru lög um lögskráningu sjómanna, nr. 35/2010. Með stoð í þeim hefur verið sett reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 817/2010. Samgöngustofa veitir aðgang að gagnagrunninum til lögskráningar til þeirra sem í samræmi við ákvæði laganna og reglugerðarinnar hafa heimild til lögskráningar. Skipstjóri ber ábyrgð á lögskráningu en er heimilt að fela útgerðarmanni að annast skráninguna. Þá er einnig heimilt að senda öll áskilin gögn til skráningar hjá Samgöngustofu.
Þegar veittur er aðgangur til skráningar utanaðkomandi aðila er það gert á grundvelli rafrænna skilríkja/auðkenna. Sett eru skilyrði fyrir því að af lögskráningu geti orðið. Þar má nefna atriði eins og skírteini skipverja, mælibréf skips, yfirlýsingu um að skipverji hafi fengið öryggisfræðslu, upplýsingar um tryggingar o.fl. Kerfið er þannig gert að ekki verður af lögskráningu nema gerð hafi verið grein fyrir þessum atriðum.
Unnið er að nýju kerfi sem samanstendur af nýrri skipaskrá, nýju lögskráningarkerfi og nýju skírteinakerfi. Kerfið er nefnt Skútan. Eitt af markmiðunum með þessu nýja kerfi er að bæta tengingar á milli kerfa er tengjast siglingamálum. Skútunni er einnig ætlað að bæta rekstraröryggi lögskráningarkerfisins sem hefur ekki staðist væntingar.
2. Hversu langt aftur í tímann heldur Samgöngustofa utan um siglingatíma sjómanna? Hvernig geta sjómenn nálgast upplýsingar um siglingatíma sinn?
Því lögskráningarkerfi sem notað er nú var komið á árið 2010. Fyrir gildistöku laga nr. 35/2010 var farið með skráninguna samkvæmt eldri lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987. Samkvæmt þeim lögum var lögskráningin í höndum sýslumanna og tollstjóra. Með tilkomu þess skráningarkerfis sem notað er nú var framkvæmdin færð til Siglingastofnunar, síðar Samgöngustofu. Þá var gert mögulegt að skrá með rafrænum hætti.
Í kerfinu eru skráningar frá þeim sem áður sáu um lögskráningu sjómanna, þ.e. sýslumönnum og tollstjóra. Því lengra sem farið er aftur í tímann þeim mun óáreiðanlegri verða upplýsingarnar. Fer þá einnig nokkuð eftir því hvaða embætti sá um skráninguna hve langt aftur í tímann upplýsingarnar ná. Almennt eru upplýsingarnar í kerfinu nokkuð áreiðanlegar aftur til 1980.
Með lögum um lögskráningu sjómanna, nr. 35/2010, var skráningu lögskráningardaga breytt. Þá varð skylda að skrá alla skipverja. Fyrir gildistöku laganna var ekki skylt að skrá skipverja á skipum sem eru minni en 20 brúttótonn.
Samgöngustofa veitir aðgang að upplýsingum úr lögskráningarkerfinu. Það er gert með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Einnig er hægt að hafa samband við Samgöngustofu til að fá upplýsingar um siglingatíma, ýmist í heild, á tilteknu tímabili eða í tiltekinni stöðu.