Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 630  —  375. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um lengd fangelsisdóma og bætur brotaþola.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve langir hafa fangelsisdómar, skilorðsbundnir og óskilorðsbundnir, verið sl. tíu ár að meðaltali í mánuðum talið fyrir hverjar milljón krónur sem stungið var undan eða stolið, sundurliðað eftir tegundum brota:
                  a.      svindl,
                  b.      skattsvik,
                  c.      fjárdráttur,
                  d.      þjófnaður?

     2.      Hve háar bætur að meðaltali hafa sl. tíu ár verið dæmdar brotaþolum vegna:
                  a.      meiðyrða,
                  b.      ólögmætrar uppsagnar,
                  c.      nauðungarvinnu,
                  d.      líkamsárásar,
                  e.      frelsissviptingar,
                  f.      nauðgunar,
                  g.      mansals?


    Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara er ekki hægt að svara framangreindum spurningum út frá þeim upplýsingum og kerfum sem lögregla og ákæruvald búa yfir. Þá býður skráning í upplýsingakerfi dómstólanna ekki upp á að hægt sé að taka umbeðnar upplýsingar út með einföldum hætti, að því er dómstólasýslan segir. Til þess að svara fyrirspurninni þyrfti því að fara í gegnum öll mál sérstaklega en slík úttekt yrði svo umfangsmikil að ekki væri hægt að svara fyrirspurninni í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.