Ferill 507. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 977 — 507. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um nefndir og starfs- og stýrihópa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða nefndir og starfs- og stýrihópar á málefnasviði ráðherra hafa verið sett á fót á yfirstandandi kjörtímabili og hver eru hlutverk þeirra?
Yfirlit yfir nefndir, starfs- og stýrihópar skipaðir á núverandi kjörtímabili sem hófst 30. nóvember 2017 á málefnasvið dómsmálaráherra eru eftirfarandi:
| Nefnd/starfshópur/stýrihópur | Lýsing |
| Stýrihópur um útboð á þyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands sem og flugskýlis til geymslu þeirra. | Hlutverk stýrihópsins er að hafa yfirumsjón með útboðsferlinu. |
| Samráðshópur vegna innleiðingar á fjórðu peningaþvættistilskipun ESB. | Samráðshópurinn hefur það hlutverk að vinna að innleiðingu fjórðu peningaþvættistilskipunar Evrópusambandsins nr. 2015/849 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka ásamt þeim lagabreytingum og reglugerðum sem fylgja í kjölfar innleiðingarinnar. |
| Nefnd um rannsókn og saksókn efnahagsbrota. | Nefndin hefur það hlutverk að greina þær kröfur sem leiða af dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í tengslum við rannsókn og saksókn skattalagabrota og móta afstöðu til þeirra breytinga sem þarf að ráðast í til að mæta þeim kröfum. |
| Starfshópur um heilbrigðisþjónustu fanga. | Hlutverk hópsins er að taka til skoðunar heilbrigðisþjónustu í fangelsum einkum geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu og úrræði vegna vímuefnavanda. |
| Samráðshópur um aðgerðir gegn skipulagðri brotasemi. | Hlutverk hópsins til að gera tillögur um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Í nýrri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra sem kom út í maí sl. er skipulögð brotastarfsemi metin sem alvarlegasta ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi að frátöldum náttúruhamförum. Í skýrslunni kemur fram að fyrirsjáanlegt sé að umfang skipulagðrar brotastarfsemi aukist hér á landi. Ástæða sé til að óttast aukið framboð fíkniefna, fjölgun mansalstilvika og misneytingar gagnvart innflytjendum og erlendu vinnuafli. Hlutverk samráðshópsins verður að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við þessum vanda, forgangsröðun þeirra og fjármögnun. |
| Samráðshópur um aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu. | Hlutverk samráðshópsins er að vera vettvangur fyrir þá aðila sem eru ábyrgir fyrir aðgerðum samkvæmt áhersluskjali stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu og annarra aðila sem hafa innsýn, þekkingu og reynslu á þessu sviði. |
| Starfshópur til að greina núverandi heimildir stofnana og félagasamtaka sem starfa með börnum til að afla upplýsinga úr sakaskrá. | Starfshópurinn hefur það hlutverk að greina núverandi heimildir stofnana og félagasamtaka sem starfa með börnum til að afla upplýsinga úr sakaskrá og meta hvort úrbóta sé þörf. Starfshópurinn er skipaður í samræmi við lið B.3 í þingsályktun um áætlun fyrir árin 2019–2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess frá 7. júní 2019. |
| Starfshópur um skipulag lögreglu. | Starfshópurinn hefur það hlutverk að vinna að greiningu á verkefnum og skipulagi lögreglu einkum embættis ríkislögreglustjóra. Starfshópnum er ætlað að hafa yfirumsjón með greiningum á verkefnum lögreglu í þeim tilgangi að leggja mat á hvort og þá hvaða breytingar á skipulagi lögreglu og verkaskiptingu á milli lögregluembætta kunni að vera til bóta. Starfshópurinn mun jafnframt útfæra nánar hlutverk og verkefni lögregluráðs og vinna drög að reglum ráðsins. |
| Starfshópur um lokað úrræði fyrir útlendinga. | Hlutverk starfshópsins er að gera tillögur og áætlun vegna lokaðs úrræðis fyrir útlendinga. |
| Vinnuhópur vegna vinnu að skýrslu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. | Vinnuhópnum er falið það hlutverk að skrifa skýrslu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og fylgja henni eftir við fyrirtöku hjá nefndinni. Einnig hefur hópurinn það hlutverk að halda utan um þau tilmæli sem Ísland fær í ferlinu og fylgja þeim eftir í samvinnu við stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi. |
| Vinnuhópur vegna vinnu að skýrslu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. | Vinnuhópnum er falið það hlutverk að skrifa skýrslu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og fylgja henni eftir. Hópurinn hefur einnig það hlutverk að halda utan um þau tilmæli sem Ísland fær í ferlinu og fylgja þeim eftir í samvinnu við stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi. |
| Framkvæmdahópur um rafrænar þinglýsingar. | Hlutverk framkvæmdahópsins er að hafa umsjón með innleiðingu rafrænna þinglýsinga og stuðla að virku samráði við hagaðila svo tryggja megi framgöngu verkefnisins á öllum sviðum. Þá fellur það jafnframt í hlut hópsins að tryggja nauðsynlegan undirbúning bæði hjá stjórnvöldum og öðrum haghöfum og fylgja eftir frekari greiningarvinnu. |
| Þingmannanefnd um málefni útlendinga og innflytjenda. | Nefndin skal vera sameiginlegur vettvangur þingmanna og fulltrúa ráðherra og ráðuneyta fyrir upplýsingaöflun og upplýsingaskipti til að dýpka skilning þingmanna á málaflokknum. Nefndin hefur jafnframt það hlutverk að vera til samráðs um framkvæmd útlendingalaga og eftir atvikum endurskoðun laga og reglugerða á málefnasviðinu með mannúðarsjónarmið og skilvirka þjónustu til grundvallar. |