Ferill 473. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 979 — 473. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um fangelsisdóma og bætur brotaþola.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hve langir hafa fangelsisdómar, skilorðsbundnir og óskilorðsbundnir, verið sl. 5 ár að meðaltali, í mánuðum talið, fyrir hverja milljón króna sem stungið var undan eða stolið, sundurliðað eftir skattsvikum og þjófnaði?
2. Hve háar bætur að meðaltali hafa sl. 5 ár verið dæmdar brotaþolum vegna
a. ólögmætrar uppsagnar,
b. líkamsárásar,
c. nauðgunar?
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara er ekki hægt að svara fyrirspurninni út frá þeim upplýsingum og kerfum sem lögregla og ákæruvald búa yfir. Skráning í upplýsingakerfi dómstólanna býður ekki upp á að hægt sé að taka umbeðnar upplýsingar út með einföldum hætti, að því er dómstólasýslan segir. Þá skráir Fangelsismálastofnun ríkisins lengd refsinga og hvort um skilorðsbundinn dóm eða óskilorðsbundinn dóm sé að ræða sem og þau lagaákvæði sem dómþoli brýtur gegn en ekki nánar eðli þeirra brota sem sakfellt er fyrir, þar á meðal þær fjárhæðir sem um ræðir.
Til þess að svara fyrirspurninni þyrfti því að fara yfir öll mál sérstaklega en slík úttekt yrði svo umfangsmikil að ekki væri hægt að svara fyrirspurninni í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.