Ferill 152. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 489 — 152. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um heróín.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mikið heróín hefur verið lagt hald á hér á landi árlega frá árinu 2010 þar til nú?
2. Hversu mörg mál var um að ræða ár hvert og hversu mikið var lagt hald á við landamæri?
Á árunum 2010–2020 komu 15 mál á borð lögreglu sem varða heróín og eru það um 0–2 mál á ári að frátöldu árinu 2018 þegar málin voru 8.
| 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020* | |
| Magn heróíns (g) | – | – | 0,2 | 0,9 | – | 0,4 | – | 8,7 | 27,8 | 0,1 | 76,7 |
| – þar af á landamærum | – | – | – | – | – | – | – | – | 2,3 | 0,1 | 76,7 |