Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 498  —  166. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um kaupendur fullnustueigna Landsbankans og félaga sem tengjast bankanum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margar fullnustueignir seldu Landsbankinn og félög tengd bankanum árlega 2008–2019, hvar voru þessar eignir og hvert var heildarsöluverð á hverju ári?
     2.      Hverjir voru kaupendur eignanna? Upplýsingar óskast um annars vegar einstaklinga og hins vegar fyrirtæki og eignarhald þeirra.
     3.      Samkvæmt hvaða þinglýstu kaupsamningum eru Landsbankinn og félög honum tengd afsalsgjafar og hvert er fasteignanúmer og söluverð hverrar fasteignar?


    Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, getur alþingismaður óskað upplýsinga eða svars frá ráðherra um opinbert málefni. Í 3. mgr. 49. gr. þingskapalaga segir: „Með opinberu málefni er átt við sérhvert málefni er tengist hlutverki og starfsemi ríkisins og stofnana þess, svo og félaga og annarra lögaðila sem eru að hálfu eða meira í eigu ríkisins og annast stjórnsýslu eða veita almenningi opinbera þjónustu á grundvelli laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða samnings.“
    Þær upplýsingar sem fyrirspurnin lýtur að eru ekki fyrirliggjandi hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess. Landsbankinn hf. og tengd félög eru ekki ríkisstofnanir eða félög sem annast stjórnsýslu eða veita opinbera þjónustu í skilningi framangreinds ákvæðis. Viðskiptabankar og félög þeim tengd eru einkaréttaraðilar og ákvarðanir þeirra eru einkaréttarlegs eðlis. Ráðuneytið getur því ekki krafist þess að bankinn eða félögin veiti þær upplýsingar sem óskað er eftir. Því er ekki unnt að veita efnislegt svar við fyrirspurninni.