Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 389  —  277. mál.




Fyrirspurn


til innanríkisráðherra um sakavottorð barna.

Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.


    Hversu mörg börn hafa verið sett á sakaskrá í kjölfar refsilagabrota undanfarin 10 ár? Hversu mörg þeirra eru enn með brot á sakaskrá sem koma fram á almennu sakavottorði, sbr. reglur ríkissaksóknara um sakaskrá ríkisins? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda ára sem brot birtast á sakavottorði.


Skriflegt svar óskast.