Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 591 — 412. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um endurheimt vistkerfa.
Frá Evu Dögg Davíðsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra fylgja eftir markmiðum verkefnis Sameinuðu þjóðanna Áratugur endurheimtar vistkerfa í tengslum við loftslagsaðgerðir, landnotkun og við verndun og endurheimt votlendis og líffræðilegs fjölbreytileika?
2. Hver er stefna ráðherra að því er snertir uppgræðslu lands og bindingu gróðurhúsalofttegunda í jarðvegi og gróðri? Hvernig tekur sú stefna mið af líffræðilegum fjölbreytileika þeirra svæða sem græða þarf?
3. Hyggst ráðherra leggja aukna áherslu á stefnu stjórnvalda frá 2018 um bætta landnýtingu í þágu loftslagsmála?
Skriflegt svar óskast.