Ferill 715. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1090  —  715. mál.




Fyrirspurn


til matvælaráðherra um sauðfjárrækt.

Frá Hönnu Katrínu Friðriksson.


     1.      Hver eru óútskýrð afföll sauðfjár í lausagöngu á hverju ári sl. 10 ár?
     2.      Hvernig mun ráðherra vinna að því að sauðfé sé ekki beitt á svæðum sem eru hættuleg með tilliti til dýraverndarsjónarmiða?
     3.      Hvernig mun ráðherra vinna að því að sauðfé sé ekki beitt á svæðum sem eru óheilnæm með tilliti til manneldissjónarmiða, til að mynda vegna notkunar plöntuverndarvara, mengunar o.fl.?
     4.      Hvernig mun ráðherra stuðla að því að neytendur fái upplýsingar um beitarsvæði vegna afurða sauðfjárræktar sem seldar eru í verslunum, svo að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um neyslu sína á grundvelli dýraverndarsjónarmiða, manneldissjónarmiða og umhverfisverndar?


Skriflegt svar óskast.