Ferill 765. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1158  —  765. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um rafræn skilríki fyrir Íslendinga sem búa erlendis.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hver er almennur gildistími rafrænna skilríkja, hvað þarf notandi að gera til að endurnýja þau og hvernig geta Íslendingar búsettir erlendis borið sig að við það?
     2.      Er stefnt að því að fela sendiráðum og eftir atvikum ræðismönnum að bjóða upp á afgreiðslu og endurnýjun rafrænna skilríkja fyrir Íslendinga búsetta erlendis? Ef svo er, hvenær má búast við að af því verði?
     3.      Hafa íslensk stjórnvöld rætt við stjórnvöld í öðrum ríkjum að þau geri Íslendingum búsettum þar kleift að sækja um eða endurnýja rafræn skilríki án þess að þurfa að koma til Íslands?
     4.      Hvernig er að öðru leyti fyrirhugað að koma til móts við Íslendinga erlendis sem þurfa á rafrænum skilríkjum að halda en hafa ekki tök á að ferðast til Íslands til að sækja um þau eða endurnýja?


Skriflegt svar óskast.