Ferill 635. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1191 — 635. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um samræmda móttöku flóttafólks.
1. Hafa sveitarfélög sett skilyrði eða lagt sérstaka áherslu á móttöku fólks af tilteknu þjóðerni við gerð þjónustusamninga um samræmda móttöku flóttafólks? Óskað er eftir sundurliðun eftir sveitarfélögum og þjóðerni ef við á.
Í aðdraganda samninga félags- og vinnumarkaðsráðuneytis við sveitarfélög um samræmda móttöku flóttafólks hefur eitt sveitarfélag, Múlaþing, lagt sérstaka áherslu á móttöku flóttafólks frá Úkraínu, sbr. það sem fram kemur í fundargerð sveitarstjórnar Múlaþings, dags. 14. desember 2022, sem finna má á vefsíðu sveitarfélagsins: „Sveitarstjórn Múlaþing[s] samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi um samræmda móttöku flóttafólks og leggur sérstaka áherslu á móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Sveitarstjóra [er] falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.“
2. Hefur ráðuneytið fallist á slíka skilmála sveitarfélaga? Ef svo er, á hvaða lagaheimild byggir það? Telur ráðuneytið slík skilyrði eða áherslur samræmast ákvæði 65. gr. stjórnarskrárinnar?
Í þeim samningum sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur undirritað með sveitarfélögum, m.a. með Múlaþingi, um samræmda móttöku flóttafólks er hvergi að finna skilyrði eða sérstaka áherslu á móttöku fólks af tilteknu þjóðerni, hvorki af hálfu ráðuneytisins né af hálfu hlutaðeigandi sveitarfélags, enda myndi slíkt að mati ráðuneytisins ganga gegn ákvæði 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.