Ferill 714. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1193  —  714. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Hönnu Katrínu Friðriksson um ágangsfé.


     1.      Hvernig mun ráðherra bregðast við áliti umboðsmanns Alþingis frá 11. október 2022, í máli nr. 11167/2021, sem kveður á um að leiðbeiningar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins (nú innviðaráðuneytisins) um smölun ágangsfjár á einkajörðum séu ekki í samræmi við ákvæði laga nr. 6/1986, um afréttamálefni, fjallskil o.fl.?
    Leiðbeiningar innviðaráðuneytisins um smölun ágangsfjár á máli nr. SRN2007003 frá 8. júní 2021, sem vísað er til í fyrirspurninni, byggðust m.a. á afstöðu matvælaráðuneytisins um þetta málefni, þar sem löggjöfin sem um ræðir í málinu heyrir undir það ráðuneyti. Innviðaráðuneytið hefur óskað eftir afstöðu matvælaráðuneytisins um niðurstöðu umboðsmanns og tiltekinna atriða sem þar er fjallað um. Þegar afstaða matvælaráðuneytisins liggur fyrir mun innviðaráðuneytið taka til skoðunar að endurskoða umræddar leiðbeiningar um smölun ágangsfjár og þá með hvaða hætti. Innviðaráðuneytið áréttar þó að það sé mat þess að nauðsynlegt sé að breyta lögum sem um þetta gilda þar sem löggjöf um málefnið er óskýr og réttaróvissa er um ýmis atriði, eins og tekið er fram í leiðbeiningum ráðuneytisins og umboðsmaður bendir einnig á.

     2.      Hvernig mun ráðherra bregðast við úrskurði dómsmálaráðuneytisins frá 11. janúar 2023, í máli nr. DMR21080053, þar sem segir m.a. að sveitarstjórn beri að láta smala ágangsfénaði á kostnað eiganda nema annað sé ákveðið í fjallskilasamþykkt?
    Innviðaráðuneytið hefur að sama skapi óskað eftir afstöðu matvælaráðuneytisins vegna úrskurðar dómsmálaráðuneytisins frá 11. janúar 2023 í máli nr. DMR21080053. Þegar afstaða matvælaráðuneytisins liggur fyrir mun innviðaráðuneytið taka til skoðunar hvort tilefni sé til að endurskoða framangreindar leiðbeiningar ráðuneytisins um smölun ágangsfjár.