Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1336 — 549. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um starfandi lögreglumenn.
1. Hver er heildarfjöldi starfandi lögreglumanna á landinu?
Hinn 1. febrúar 2022 voru 696 menntaðir lögreglumenn starfandi hjá lögreglu. Ef afleysingamenn eru taldir með var heildarfjöldi þeirra sem störfuðu við löggæslu 781.
2. Hvert er hlutfall menntaðra og ómenntaðra lögreglumanna?
Hlutfall afleysingamanna árið 2022 var 11% af heildarfjölda starfandi lögreglumanna.
3. Hver hefur þróun fjölda starfandi lögreglumanna verið frá 2008 til 2022?
Fjöldi menntaðra og ómenntaðra lögreglumanna eða í þjálfun hinn 1. febrúar ár hvert á árunum 2007 til 2022:
| Ár | Menntaðir lögreglumenn | Afleysinga-menn | Heildar-fjöldi |
| 2007 | 683 | 29 | 712 |
| 2008 | 646 | 14 | 660 |
| 2009 | 686 | 26 | 712 |
| 2010 | 659 | 2 | 661 |
| 2011 | 647 | 5 | 652 |
| 2012 | 656 | 3 | 659 |
| 2013 | 654 | 2 | 656 |
| 2014 | 653 | 2 | 655 |
| 2015 | 653 | 20 | 673 |
| 2016 | 646 | 13 | 659 |
| 2017 | 645 | 21 | 666 |
| 2018 | 630 | 32 | 662 |
| 2019 | 666 | 36 | 702 |
| 2020 | 662 | 39 | 701 |
| 2021 | 682 | 41 | 723 |
| 2022 | 696 | 85 | 781 |
4. Hefur þróun fjölda lögreglumanna haldist í hendur við fólksfjölgun í landinu og fjölgun ferðamanna á sama árabili?
Menntaðir lögreglumenn voru 2,2 á hverja 1.000 íbúa árið 2007 og 1,8 á hverja 1.000 íbúa árið 2022. Ef litið er til heildarfjölda starfandi lögreglumanna, þ.e. menntaðra og ómenntaðra, þá voru þeir 2,3 á hverja 1.000 íbúa árið 2007 en 2,1 á hverja 1.000 íbúa árið 2022.
Hvað varðar fjölda ferðamanna má sem dæmi nefna að á árunum 2012 og 2013 voru lögreglumenn í kringum 10 á hverja 10.000 ferðamenn en á árunum 2017 og 2018 var hlutfallið komið niður í tæplega þrjá lögreglumenn á hverja 10.000 ferðamenn.
5. Liggur fyrir þarfagreining um æskilegan fjölda lögreglumanna á landinu í heild og skipt eftir landshlutum?
Ríkislögreglustjóri hefur unnið að greiningu á mannaflaþörf á grundvelli markmiða löggæsluáætlunar fyrir árin 2019–2023 um öryggis- og þjónustustig. Við þá vinnu er horft til mikillar fjölgunar íbúa og ferðamanna sem valdið getur margvíslegu álagi á lögreglu á ýmsum sviðum. Þá er horft til þess að á síðustu árum hafa auknar kröfur á lögreglu leitt til þess að fleiri lögreglumenn eru að sinna sérverkefnum sem ekki snúa að útkalli eða rannsókn brota.
6. Hefur farið fram mat á mannaflaþörf í tengslum við rannsókn mála sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi?
Ríkislögreglustjóri hefur lagt mat á það hvernig efla megi rannsókn og saksókn vegna skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi. Þar hefur m.a. verið horft til þess hvernig byggt er undir rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi og þeim forgangsraðað. Í greiningum ríkislögreglustjóra kemur fram að fjölga þurfi stöðugildum og veita aukið fjármagn til nauðsynlegra tækja- og hugbúnaðarkaupa til að efla megi rannsókn skipulagðrar brotastarfsemi. Þá hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að efla alþjóðlegt samstarf í tengslum við baráttu við skipulagða brotastarfsemi.
Dómsmálaráðherra kynnti nýlega fjórþætta aðgerðaáætlun í löggæslumálum sem felur m.a. í sér stóreflingu aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi. Í aðgerðaáætluninni felst m.a. að fjölgað verður um allt að 20 stöðugildi innan lögreglu og ákæruvalds til þess að styrkja rannsóknar- og greiningargetu lögreglu varðandi skipulagða brotastarfsemi.
7. Hefur stytting vinnuvikunnar haft áhrif á lögregluna í landinu hvað varðar þörf fyrir fjölda starfandi lögreglumanna sem og á kostnað?
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra er reiknað með að verkefnið Betri vinnutími í vaktavinnu muni koma til með að hafa þau áhrif að fjölga þurfi um 50–70 menntaða lögreglumenn. Fjöldinn færi eftir vaktaskipulagi, við hvaða fjölda er miðað í upphafi og hvernig breytingin hefur áhrif á röðun á vaktir sem hafa mismunandi vægi í vinnuskilum.
Ríkislögreglustjóri hefur ekki metið endanlegan kostnað er varðar styttingu vinnuvikunnar enda er hann líklega ekki kominn fram að fullu. Kostnaðarmat fjármála- og efnahagsráðuneytisins var um 700 millj. kr. en í kostnaðaráætlunum ríkislögreglustjóra var reiknað með um 900 millj. kr.
8. Hver er fjöldi starfandi lögreglumanna á Íslandi á hverja 100.000 íbúa í evrópskum samanburði?
Samkvæmt tölum frá Eurostat fyrir árið 2020 voru að meðaltali 333,4 lögreglumenn á hverja 100.000 íbúa í Evrópu en á Íslandi er hlutfallið 176 lögreglumenn á hverja 100.000 íbúa. Vegna mismunandi löggæsluskipulags landa er samanburður erfiður enda misjafnt hvað er talið með og hvað ekki. Sem dæmi má nefna að sum lönd telja landamæraverði með en önnur ekki. Heilt yfir er hlutfall lögreglumanna lægra á Norðurlöndunum en þegar sunnar og austar dregur í álfunni.
9. Hverjar hafa óskir lögreglustjóra á landinu verið til stjórnvalda um aukinn mannafla á áðurnefndu tímabili? Hefur þessum óskum um aukinn mannafla verið mætt af hálfu dómsmálaráðherra, og þá hvernig?
Embætti ríkislögreglustjóra hefur síðustu ár lagt til að lögreglumönnum yrði fjölgað en embættið hefur talið nauðsynlegt að efla löggæslu með því að fjölga lögreglumönnum. Árið 2021 var tekin ákvörðun um að tvöfalda fjölda nemenda í lögreglunámi og leitast þannig við að lækka hlutfall ómenntaðra lögreglumanna, mæta starfsmannaveltu og fjölga til framtíðar stöðugildum innan lögreglunnar.
Á síðustu árum hefur lögreglan fengið umtalsverðar viðbótarfjárheimildir til þess að efla löggæslu með margvíslegum hætti. Viðbótarfé sem veitt hefur verið til styrkingar lögreglu á tímabilinu 2014–2023 er samtals 6.390 millj. kr. að raungildi á verðlagi hvers árs. Þessu fé hefur verið veitt til ýmissa brýnna verkefna, m.a. til að fjölga lögreglunemum, eins og áður greinir, styrkja almenna löggæslu, efla viðbragð gegn skipulagðri brotastarfsemi og styrkja landamæravörslu í samræmi við alþjóðlegar kröfur. Þá hefur dómsmálaráðherra lagt sérstaka áherslu á auknar fjárveitingar til lögreglu í þeim tilgangi að bæta og flýta meðferð mála og hefur verið lagt til aukið fjármagn í þeim tilgangi að efla og styrkja rannsókn og meðferð kynferðisbrotamála með fjölgun stöðugilda.
Nýlega kynnti dómsmálaráðherra fjórþætta aðgerðaáætlun í löggæslumálum sem felur í sér umfangsmikla eflingu almennrar löggæslu, eflingu menntunar lögreglumanna, nýja aðgerðaáætlun gegn kynferðisbrotum og stóreflingu aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi. Aðgerðirnar felast m.a. í því að bætt verður við samtals 80 stöðugildum til að mæta veikleikum og efla löggæslu um allt land. Þetta mun leiða til þess að á höfuðborgarsvæðinu verður stigið stórt skref þegar lögreglumönnum á vakt verður fjölgað. Viðbragðsgeta á landsbyggðinni verður einnig styrkt verulega.