Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1368  —  362. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu.


     1.      Hve margir einstaklingar hafa frá árinu 2018 sótt um þjónustu á grundvelli reglugerðar nr. 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Umbeðnar upplýsingar liggja ekki fyrir hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og því var fyrirspurn send til forsvarsmanna félagsþjónustu hvers sveitarfélags. Svör bárust frá 26 sveitarfélögum.

2018 2019 2020 2021 2022
Fjöldi umsækjenda 635 752 825 943 873

     2.      Hve lengi frá árinu 2018, í mánuðum talið, hafa einstaklingar þurft að bíða eftir þjónustu eftir að umsókn hefur verið lögð fram? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Hluti sveitarfélaga heldur ekki utan um upplýsingar um biðtíma eftir þjónustunni. Fram kom í svörum þeirra að þessi þjónusta væri í forgangi og að biðtími væri almennt stuttur. Um helmingur þeirra 19 sveitarfélaga sem hafði upplýsingar um biðtíma sagði hann hafa verið minna en einn mánuð allt tímabilið.

2018 2019 2020 2021 2022
Biðtími í mánuðum 0–4,6 0–2,7 0–3,1 0–3 0–3
Meðaltal 0,68 0,57 0,44 0,54 0,53