Ferill 882. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1384 — 882. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um þróun ríkisútgjalda með tilliti til launa- og verðlagsþróunar.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvert var hlutfall útgjalda á hverju málefnasviði sem er háð launaþróun frá árinu 2017? Hver var launakostnaður hvers málefnasviðs frá árinu 2017? Hversu mikið hækkuðu þau útgjöld hlutfallslega sem eru háð launaþróun á hverju málefnasviði frá 2017? Hver var hlutfallsleg launaþróun hvers árs frá 2017?
2. Hvert var hlutfall útgjalda á hverju málefnasviði sem er háð verðbólgu frá árinu 2017? Hversu há voru útgjöld sem voru háð verðbólgu á hverju málefnasviði frá árinu 2017? Hlutfallslega hversu mikið hækkuðu þau útgjöld sem eru háð verðbólgu á hverju málefnasviði frá 2017? Hver var hlutfallsleg hækkun verðbólgu hvers árs frá 2017?
3. Hvaða ályktun dregur ráðherra af launaþróun og þróun launakostnaðar á undanförnum árum?
4. Hvaða ályktun dregur ráðherra af þróun útgjalda á undanförnum árum sem eru háð verðbólgu?
Skriflegt svar óskast.