Ferill 921. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1450 — 921. mál.
Frumvarp til laga
um hnefaleika.
Flm.: Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Stefán Vagn Stefánsson.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um að banna hnefaleika, nr. 92/1956, og lög um áhugamannahnefaleika, nr. 9/2002.
Greinargerð.
Hnefaleikar, stundum kallað „box“ í almennu tali, er meðal þekktustu íþróttagreina heims. Íþróttin er bardagaíþrótt og er stunduð í nokkrum þyngdarflokkum þar sem tveir einstaklingar keppa hvor gegn öðrum við það að koma sem flestum löglegum höggum á hinn eða ná tæknilegu rothöggi (þar sem andstæðingurinn fellur niður í kjölfar höggs og stendur ekki upp innan tíu sekúndna). Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefaleikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin. Ýmsar reglur gilda um lögmæti höggs, öryggisráðstafana er gætt í hvívetna og högg eru mismunandi skilgreind hvað varðar stigagjöf. Ásamt þessu eru ýmis brögð og stílar til staðar sem hnefaleikakappar, eða „boxarar“, hafa varið árum saman í að fullkomna. Þeir sem æfa og stunda hnefaleika reglulega eru almennt í góðu líkamlegu formi og lifa heilbrigðum lífsstíl. Hnefaleikar, eins og allar aðrar íþróttir, eru góðir fyrir líkama og sál. Það er enginn grundvallarmunur á hnefaleikum, eða öðrum bardagaíþróttum, og öðrum íþróttum sem viðurkenndar eru hér á landi. Hins vegar hafa hnefaleikar sem og margar aðrar bardagaíþróttir verið misskildar og/eða sætt fordómum í áranna raðir hér á landi og víðar.
Hnefaleikar eiga sér langa sögu sem má rekja aftur til tíma Súmera, sem eru taldir hafa myndað fyrsta siðmenningarsamfélag jarðarinnar. Fyrstu reglur um hnefaleika voru settar árið 1867 í Englandi og kallast Marquess of Queensberry-reglurnar. Þær reglur hafa legið til grundvallar allrar þeirra reglna sem gilda um íþróttina í dag.
Íþróttin hefur verið ólympíuíþrótt frá 1904, en keppt hefur verið í ólympískum hnefaleikum alla sumarólympíuleika síðan þá, að undanskildum ólympíuleikunum í Stokkhólmi árið 1912. Það var þá vegna lögbanns á hnefaleikum í Svíþjóð á þeim tíma. Hnefaleikar hösluðu sér völl á Íslandi árið 1916 með kennslu í leikfimisal Landakotsspítala. Í kjölfarið jókst áhugi Íslendinga á hnefaleikum töluvert og íþróttafélög á borð við Íþróttafélagið Ármann og Íþróttafélag Reykjavíkur tóku hnefaleika á starfsskrá sína. Fyrsta viðurkennda hnefaleikamót á Íslandi var haldið 22. apríl í Gamla bíói. Eftir það var reglulegt mótshald í hnefaleikum hér á landi þar til að lögbann var samþykkt 29. desember 1956. Ákveðinn munur er á milli áhugamannahnefaleika (ólympískir hnefaleikar) og atvinnuhnefaleika. Skylt er að hafa höfuðhlífar í áhugamannahnefaleikum en slík krafa er ekki til staðar við iðkun atvinnumannahnefaleika. Í ólympískum hnefaleikum stendur hver viðureign í þrjár lotur en viðureign í atvinnumannahnefaleikum getur staðið í allt að tólf lotur, þó ávallt með þeim fyrirvara að viðureign getur klárast fyrr. Þá aðallega með tæknilegu rothöggi.
Í dag eru sjö hnefaleikafélög starfrækt hér á landi. Þau reka skipulagt íþróttastarf á sviði hnefaleika. Hnefaleikasamband Íslands (HNÍ) var stofnað 30. september 2015 og gegnir veigamiklu hlutverki fyrir íþróttina á Íslandi. Það sinnir fræðslu- og kynningarhlutverki á íþróttinni, sér um að mótshald sé í samræmi við reglur, er fulltrúi íþróttarinnar á alþjóðlegri grundu fyrir hönd Íslands, sér til þess að stefnur og reglur hér á landi séu í takt við alþjóðlegar reglur og staðla ásamt því að veita dómurum og þjálfurum fræðslu og aðhald með skipulögðum námskeiðum. HNÍ er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Hnefaleikar hafa verið vinsæl íþrótt bæði meðal áhorfenda og iðkenda hér á landi og um allan heim. Hnefaleikamenn hafa verið meðal hæstlaunuðu íþróttamanna heims síðastliðin ár, enda er nánast alltaf slegist um miða á hvern hnefaleikaviðburð ásamt því að fólk um allan heim borgar háar fjárhæðir fyrir að horfa á viðburði hvort sem það er í sjónvarpi eða á netinu. Margir hnefaleikamenn eru meðal frægustu einstaklinga heims, en þar má t.d. nefna Muhammad Ali, Mike Tyson, Floyd Mayweather, Manny Pacquiao, Oscar De La Hoya og George Foreman. Síðastliðin ár hafa vinsældir hnefaleika aukist aftur í fyrra horf eftir örlitla lægð. Nú seljast miðar óðfluga á hnefaleikaviðburði hefðbundinna hnefaleikamanna, frægra stjarna og annarra íþróttamanna, sem höfðu skapað sér vinsældir fyrir iðkun annarra íþrótta.
Flutningsmenn eru meðvitaðir um áhættu þess að stunda hnefaleika. Öllum íþróttagreinum fylgir hætta á meiðslum hvort sem þau eru alvarleg eða meiri háttar. Með réttum búnaði, öryggisráðstöfunum o.fl. þá er þeim áhættum haldið í lágmarki. Í dag er ómögulegt að bera saman öryggisbúnað- og ráðstafanir sem fylgja íþróttaiðkun við það sem tíðkaðist fyrir mörgum áratugum, t.d. þegar umdeilt bann við hnefaleikum var lögfest hér á landi. Reglur hafa breyst töluvert þá sérstaklega hvað varðar pörun andstæðinga, heilbrigðiseftirlit með keppendum og öryggisráðstafanir á viðburðum t.d. ef til rothöggs eða meiðsla kemur. Reglum um hönnun hanska og bindingar á höndum hafa einnig breyst. Þá aðallega til að sporna við meiðslum þeirra sem veita höggið hverju sinni. Einnig hefur lotum verið fækkað í atvinnumannahnefaleikum til að sporna enn frekar við alvarlegum meiðslum, en þær breytingar áttu sér stað í kjölfar alvarlegs atviks árið 1982.
Með framangreindu banni við hnefaleikum skertist frelsi bæði til iðkunar og atvinnu. Frelsi til iðkunar áhugamannahnefaleika hefur þegar verið veitt aftur, sem dregur úr banni frá 1956. Hins vegar telja flutningsmenn að bann við atvinnumannahnefaleikum skerði atvinnufrelsi. Í 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.“ Það frelsi má þó takmarka með lögum ef almannahagsmunir krefjast þess. Ekki er talið að almannahagsmunir samfélagsins krefjist þess að takmarka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefaleika varðar.
Með samþykkt frumvarpsins verður staða hnefaleika, þessarar vinsælu íþróttagreinar, styrkt hér á landi og um leið auknir möguleikar á því að atvinnumenn í hnefaleikum geti komið frá Íslandi í náinni framtíð.